„Stórkostlega útfært og ekki einfalt, ef menn halda það“ Sindri Sverrisson skrifar 16. janúar 2021 21:32 Guðmundur Guðmundsson hélt sínum mönnum á tánum allan leikinn í kvöld. EPA-EFE/Khaled Elfiqi „Þetta var frábærlega leikinn leikur hjá okkur, bæði varnarlega og sóknarlega,“ sagði Guðmundur Guðmundsson eftir risasigurinn á Alsír á HM í handbolta í kvöld.
Landsliðsþjálfarinn hafði ekki yfir neinu að kvarta í viðtali við RÚV eftir algjörlega frábæra frammistöðu íslenska liðsins í 39-24 sigri: „Ég fann það einhvern veginn í dag að leikmenn voru mjög vel stemmdir. Það var frábær stemning og vilji í liðinu og við erum að fylgja eftir þessum varnarleik sem við erum búnir að sýna í síðustu leikjum gegn Portúgal, gríðarlega sterka vörn, og við fengum góða markvörslu í dag. Sóknarleikurinn gekk frábærlega. Hann var mjög vel útfærður, agaður. Við spiluðum ekki mörg kerfi en gerðum það sem við ætluðum okkur og gerðum það mjög, mjög vel,“ sagði Guðmundur, sem var duglegur að gera breytingar á liði sínu út allan leikinn og allir lögðu sín lóð á vogarskálarnar. Ekki orðlaus í hálfleik en vildi halda mönnum heitum „Þetta er bara stórkostlega vel útfært og ekkert einfalt ef menn halda það. Þetta lið er erfiður andstæðingur að öllu jöfnu. Varnarleikurinn var bara frábær. Við fengum vörslu og hraðaupphlaup í kjölfarið en það er ekkert einfalt að halda þessu í tíu mörkum í svona leik. Útfærslan á leiknum, af hálfu drengjanna, var frábær. Við fáum inn menn núna með mjög góða innkomu, sem var mjög ánægjulegt, að fá meiri breidd í liðið. Við spiluðum svolítið á það,“ sagði Guðmundur við RÚV. Strákarnir okkar voru kampakátir eftir leikinn í kvöld.EPA-EFE/Khaled Elfiqi Athygli vakti hve stuttan tíma Ísland nýtti inni í búningsklefa í hálfleik. Var Guðmundur orðlaus? „Nei, alls ekki. Við fórum yfir hlutina og lögðum áherslu á að við ætluðum að byrja á fullu. Ekki slaka neitt á. Hvert mark telur. Ég vildi fá stutta upphitun í gang svo að menn væru komnir inn í seinni hálfleikinn á fullu. Stundum tekur langan tíma að komast í gang þegar svona miklu munar í hálfleik, en við lögðum upp með að byrja af fullu og klára þetta með stæl,“ sagði þjálfarinn. Lítið búnir að æfa að sækja gegn svona vörn Framundan er leikur við aðra Afríkuþjóð, Marokkó, á mánudagskvöld og undirbúningurinn fyrir leikinn í kvöld gæti vel nýst áfram þar: „Við vorum lítið búnir að æfa á móti þessari framliggjandi vörn, fórum yfir þetta í gær og höfðum bara rúman klukkutíma til þess. Við fórum bara yfir hvernig við ætluðum að spila, og ætluðum ekki að flækja hlutina mikið heldur spila ákveðnar innleysingar og gera svo árásir á þá. Þetta gekk fullkomlega upp og vonandi getum við tekið það með inn í næsta leik. Þar getum við mætt andstæðingi sem spilar vörnina enn framar, svokallaða 3-3 vörn, og maður verður að vera klár í slaginn. Það þarf að gíra sig upp í svona leiki. Við sjáum líka árásirnar frá þeim. Þeir koma á vaðandi siglingu og það er ekkert einfalt að stoppa þetta. Í dag gekk það frábærlega,“ sagði Guðmundur.
HM 2021 í handbolta Tengdar fréttir Leik lokið: Alsír - Ísland 24-39 | Fimmtán marka stórsigur á Alsíringum Ísland vann stórsigur á Alsír, 24-39, í F-riðli heimsmeistaramótsins í Egyptalandi í kvöld. Þetta var fyrsti sigur Íslands á HM og kærkominn eftir tapið fyrir Portúgal, 25-23, á fimmtudaginn. 16. janúar 2021 20:55 Mest lesið Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Körfubolti Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Körfubolti Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Fótbolti Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Handbolti Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Fótbolti Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Fótbolti Fleiri fréttir Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Myndaveisla frá risasigrinum á Eistum Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Sjá meira
Leik lokið: Alsír - Ísland 24-39 | Fimmtán marka stórsigur á Alsíringum Ísland vann stórsigur á Alsír, 24-39, í F-riðli heimsmeistaramótsins í Egyptalandi í kvöld. Þetta var fyrsti sigur Íslands á HM og kærkominn eftir tapið fyrir Portúgal, 25-23, á fimmtudaginn. 16. janúar 2021 20:55