Guðni Bergsson, fyrrverandi formaður KSÍ, sendi bréf á forráðamenn knattspyrnufélaga á Íslandi í vikunni þar sem hann ræðir meðal annars brotthvarf sitt úr formannsstól KSÍ, þakkar fyrir sig og kveður hreyfinguna.
Forrmaðurinn fyrrverandi lét óvænt af störfum í lok síðasta mánaðar eftir að Knattspyrnusambandið hafði verið harðlega gagnrýnt fyrir þöggun og meðvirkni með meintum gerendum innan sambandsins.
„Undanfarnar vikur hafa verið mér lærdómsríkar. Í kjölfar mikillar umræðu í þjóðfélaginu, jafnt í fjölmiðlum sem á samfélagsmiðlum, tók ég þá erfiðu ákvörðun að segja af mér sem formaður KSÍ þann 29. ágúst sl. Þá höfðu málin þróast þannig að ég hafði ekki stuðning stjórnar í þeirri erfiðu og vandasömu stöðu sem komin var upp. Það var því ekkert annað í stöðunni en að axla ábyrgð og segja af mér sem formaður KSÍ," skrifar Guðni í bréfinu sem birtist fyrst á 433.is.
Guðni mætti í Kastljósviðtal hinn 26. ágúst þar sem hann neitaði staðfastlega að KSÍ hefði fengið tilkynningar um meint kynferðisbrot af hálfu landsliðsmanna í knattspyrnu.
Í kjölfar ummæla Guðna steig Þórhildur Gyða Arnarsdóttir fram og greindi frá meintu broti landsliðsmanns í knattspyrnu en sá reyndist vera Kolbeinn Sigþórsson.
„Af virðingu við hlutaðeigandi þolendur hyggst ég ekki ræða efnislega hér þau tilteknu mál sem leiddu til afsagnarinnar. Ég hef þegar beðist afsökunar og ítreka beiðnina hér á röngu svari í Kastljósi sem ég í einlægni taldi vera rétt en kom ekki heim og saman við atvikalýsingu þolenda. Ég fékk það mál til meðferðar í mars 2018 en það fór síðan í viðeigandi ferli og náðist sátt á milli málsaðila það vor án aðkomu minnar.
Annað mál sem við tókumst á við á rætur að rekja til ársins 2010 og snýr að frásögn og alvarlegum ásökunum sem birtust nýverið á samfélagsmiðlum og kom til okkar vitundar í sumar. Það er ljóst að við í knattspyrnuhreyfingunni erum hluti af samfélaginu og verðum að hlusta á málefnalega gagnrýni og þær kröfur sem uppi eru hverju sinni. Viðbrögð við slíkri gagnrýni þurfa að vera yfirveguð og fagleg,“ skrifaði Guðni.
Þá fer formaðurinn fyrrverandi einnig yfir það sem hann og stjórn KSÍ afrekuðu á starfstíma Guðna.
„Knattspyrnusvið var sett á fót með sérstökum yfirmanni þess, Arnari Þór Viðarssyni og framfaraskref tekin á mörgum sviðum þar með auknum mælingum og þjálfun yngri landsliða. Unnið var náið með aðildarfélögunum með kostun á mynd- og leikgreiningu og við þjálfun m.a. með þjálfurum félaganna. Við kynntum nýja metnaðarfulla afreksstefnu og héldum fyrsta UEFA Pro Licence námskeiðið á Íslandi,“ skrifaði formaðurinn meðal annars.
Hann endar svo á því að þakka fyrir sig og öllum þeim sem hann starfaði með.
„Að lokum vil ég segja, þar sem ég verð ekki með ykkur á aukaþinginu sem framundan er, að það hafa verið forréttindi að starfa með ykkur og öllu því góða fólki sem að knattspyrnuhreyfingunni kemur. Starf ykkar fyrir fótboltann og um leið samfélagið allt er gríðarlega mikilvægt. Við megum aldrei missa sjónar á því. Ég vil í lokin þakka fyrir mig og óska ykkur öllum, kæru félagar og vinir, góðs gengis og bjartrar framtíðar í starfi og leik,“ bætti formaðurinn fyrrverandi við.