Furðar sig á ummælum um mögulegt leikbann Erlings Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 27. maí 2023 11:30 Pavel Ermolinskij, þjálfari körfuboltaliðs Tindastóls, furðar sig á því að Arnar Daði Arnarsson og sérfæðingar Seinni bylgjunnar, hafi velt fyrir sér mögulegu leikbanni Erlings Richardssonar, þjálfara ÍBV. Vísir/Hulda Margrét Pavel Ermolinskij, þjálfari nýkrýndra Íslandsmeistara Tindastóls í körfubolta, furðar sig á ummælum sérfræðinga Seinni bylgjunnar um mögulegt leikbann Erlings Richardssonar, þjálfara ÍBV í handbolta, eftir leik liðsins gegn Haukum í úrslitaeinvígi Olís-deildar karla í gær.
Eins og gefur að skilja var Erlingur ósáttur við ýmislegt eftir sex marka tap sinna manna í gær og lét óánægju sína í ljós í viðtali eftir leik. Hann gaf nokkuð augljóslega í skyn að hann væri ósáttur við dómgæsluna í leiknum og virtist beina spjótum sínum að dómaraparinu Antoni Pálssyni og Jónasi Elíassyni. Þeir Henry Birgir Gunnarsson og Arnar Daði Arnarsson lýstu leiknum og eftir viðtalið voru þeir hálf slegnir. Arnar Daði sagðist skilja reiði Erlings, en velti fyrir sér hvort ummæli hans gætu farið fyrir borð aganefndar HSÍ. Verði erfitt fyrir HSÍ að setja Erling ekki í bann Í kjölfarið mætti Arnar Daði svo í settið hjá Seinni bylgjunni til að gera upp leikinn. Þar var viðtalið við Erling að sjálfsögðu rætt og Arnar benti á það að fordæmi séu fyrir því að þjálfarar hafi fengið leikbönn fyrir slík ummæli í garð dómara. „Ég fékk sjálfur leikbann, og meira að segja þriggja leikja bann, fyrir viðtal sem ég fór í hérna þar sem ég tjáði mig bara frá hjartanu um það að mér fannst dómararnir hafa áhrif á það að við höfum ekki unnið leikinn á þeim tíma,“ sagði Arnar Daði og á þá við þegar hann var þjálfari Gróttu. „Þessi ummæli voru talin skekkja ímynd handboltans. Ef þú ert með fordæmi fyrir þessu þá verður mjög erfitt fyrir HSÍ og aganefndina að setja Erling ekki í bann,“ bætti Arnar við. Klippa: Seinni bylgjan ræðir viðtal Erlings Þúsundir séu komin með leikbannsflugu í hausinn sem muni bara stækka Eins og áður segir lagði körfuboltaþjálfarinn Pavel Ermolinskij orð í belg og hann furðar sig á þessari umræðu um mögulegt leikbann á Twitter-síðu sinni. „Er ég að skilja rétt að handboltapanellinn í sjónvarpinu vill senda þjálfara ÍBV í bann útaf viðtali? Stöð tvö þarf að ná tökum a hlutum aftur,“ ritar Pavel. Arnar Daði var hins vegar fljótur að svara þjálfaranum og biður hann um að horfa aftur á umræðuna til að reyna að skilja hana betur. Hann bendir á að fordæmi séu fyrir leikbanni, en Pavel lítur sem svo á að þarna sé eingöngu verið að reyna að búa til gott og dramatískt sjónvarp. „Ég náði þessu öllu og skil og virði að þú ert að reyna að búa til gott dramatískt sjónvarp. Það er gott. Betra en hitt. Línan er þunn. Meginþorrinn, þúsundir sem að sitja heima og skilja ekki alveg allt eru núna komin með leikbannsflugu í hausinn sem mun bara stækka,“ segir Pavel áður en hann minnir á að þessi umræða gæti haft bein áhrif á næsta leik fái hún að grassera. Samskipti Pavels og Arnars má sjá í Twitter-þræðinum hér fyrir neðan. Er ég að skilja rétt að handboltapanellinn í sjónvarpinu vill senda þjálfara ibv í bann útaf viðtali? Stöð tvö þarf að ná tökum a hlutum aftur.— Pavel Ermolinski (@pavelino15) May 26, 2023
Olís-deild karla ÍBV Seinni bylgjan Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Sigríður Á. Andersen varð Íslandsmeistari Sport Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Enski boltinn Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Enski boltinn Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Enski boltinn Hetja Keflvíkinga hafði aldrei áður skorað svona flautukörfu á ferlinum Körfubolti Í beinni: KA-KR | Tvö lið í brasi mætast Íslenski boltinn Búið að fjarlægja auglýsingarnar af gólfinu í Smáranum Körfubolti „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Segir „mjög líklegt“ að Guðlaug Edda komist á ÓL í París í sumar Sport Fleiri fréttir Fyrsta tap lærisveina Guðjóns Vals síðan í byrjun mars Öruggt hjá Teiti Erni og félögum HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Grótta upp í Olís eftir sigur með minnsta mun í oddaleik Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Jóhanna Margrét frábær í góðum sigri Skara Viggó fór á kostum í góðum sigri Leipzig Reiður Einar hellti sér yfir eftirlitsdómarana Hættir eftir að hafa komið Fjölni upp „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Sjá meira