Bíll við bíl í snjókomunni í Reykjavík og árekstur tefur umferð Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. nóvember 2021 16:54 Það er vissara að hafa varann á í umferðinni á þessum snjódegi vetrarins í Reykjavík. Vísir/Vilhelm Árekstur tveggja bíla varð á Hafnarfjarðarvegi nærri Arnarnesbrúnni síðdegis. Vinna stendur yfir á vettvangi og gengur umferð afar hægt frá Reykjavík til Kópavogs, Garðabæjar og Hafnarfjarðar af þessum sökum. Árekstur.is segist hafa sinnt á annan tug árekstra síðdegis og hafi komið á óvart hve margir séu á sumardekkjum. „
Ég fór frá lögreglustöðinni fyrir hálftíma og er kominn á gatnamót Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar,“ segir Ásgeir Ásgeirsson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er lýsandi fyrir ferðalög fólks um höfuðborgarsvæðið í snjókomunni seinni partinn í dag. Vegalengdin sem Ásgeir hafði ferðast er um tveir kílómetrar. Til gamans má reikna út meðalhraða hans þennan hálftíma, fjórir kílómetrar á klukkustund sem er ekki óþekktur gönguhraði. „Umferðin fer bara fetið,“ segir Ásgeir. Þessi hjólreiðakappi verður örugglega fljótari heim til sín en margur akandi.Vísir/Vilhelm Snjónum byrjaði að kyngja niður eftir hádegið, mörgum til mikillar gleði enda fyrsti í aðventu í gær og desember fram undan. Gleðin er líklega ekki jafn mikil hjá þeim sem aka enn á sumardekkjunum. Ásgeir minnir á að það þurfi aðeins einn illa búinn bíl til að setja allt úr umferð. Hann beinir til þeirra sem eru á sumardekkjum að fresta heimför til að lenda ekki í basli sem stöðvi umferð annarra. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur sinnt einu útkalli í umferðinni eftir að snjórinn byrjaði að falla. Árekstur tveggja bíla Hafnarfjarðarvegi undir Arnarneshæðinni sem tefur töluvert fyrir umferð. Annars virðist umferðin ganga stórslysalaust fyrir sig en afar hægt. „Það eru allar götur bara pakkaðar,“ segir Ásgeir sem hafði lokið vakt og á leiðinni heim. Fólk ætti að reikna með að það taki sinn tíma að komast heim í dag. Í myndbandi hér að neðan má sjá hversu þung umferðin var á Hringbraut á sjötta tímanum í kvöld. Uppfært klukkan 17:05 Fréttastofa fékk ábendingu um að vörubíll ætti í miklum erfiðleikum að komast upp Bústaðaveginn nærri Skógarhlíð. Það tefði sömuleiðis fyrir umferð á svæðinu. Þá kemur fram í tilkynningu frá Árekstur.is að fyrirtækið hafi sinnt á annan tug árekstra í umferðinni síðdegis. Kalla hafi þurft út mannskap af frívakt. „Þá hefur það komið okkur mjög á óvart hversu margir í þessum árekstrum eru enn á sumardekkjum.“ Uppfært klukkan 17:25 Fréttastofa hefur fengið ábendingu frá vegfaranda um að vörubíll sé í basli í Ártúnsbrekku sem tefji fyrir umferð.
Samgönguslys Reykjavík Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira