Líkti Zvonko við remúlaði í bragðaref Anton Ingi Leifsson skrifar 8. maí 2021 12:01 Zvonko með boltann í leik gegn Keflavík fyrr á leiktíðinni. Benedikt Guðmundsson, körfuboltaspekingur, er ekki hrifinn af Zvonko Buljan leikmanni ÍR. Þetta kom fram í Domino's Körfuboltakvöldi sem var á dagskrá í gærkvöldi. ÍR tapaði fyrir Njarðvík í miklum fallbaráttuslag á fimmtudagskvöldið en Breiðhyltingar geta enn fallið eftir tapið. Rætt var um frammistöðu Zvonko í þættinum í gær en hann gekk í raðir liðsins í lok janúar. Hann hefur ekki hrifið Benedikt. „Þetta er ekta Zvonko. Hann vill bara stela boltanum til að setja tvö stig hinu megin. Ég verð bara að segja: Ég get hann ekki. Þetta er orðið of mikið af hinu góða,“ sagði Benedikt. „Hann gerir bara hluti sem koma fram á tölfræðiblaðinu. Hann er til í að eltast við einhver fráköst, ekki öll. Hann er alltaf til í að skora. Hann er til í að gefa hann ef hann fær stoðsendingu en hann gerir ekkert fyrir varnarleikinn nema að þeir eru fjórir í vörn.“ Sævar Sævarsson tók í sama streng og hrífst ekki af varnarleik ÍR-liðsins. „Það er einn leikmaður í liðinu sem nennir að spila vörn af fullum krafti. Það er Colin Pryor og hann var ekki með í þessum leik,“ en Colin var ekki með vegna veikinda eftir bólusetningu vegna kórónuveirufaraldursins. „Ég hef talað um að Milka og Deane séu eins og skinka og ostur, því þeir passi svo vel saman. Fyrir mér er Zvonko eins og að setja remúlaði í bragðarefinn.“ „Þú ert með góðan ís og ert kominn með kökudeigið, jarðarberið og kókósbolluna en svo mátti Borce bæta við einu nammi; hann setti remúlaði. Eftir það finnst mér liðið orðið ónýtt. Þetta er kannski ýkt en þetta passar ekki í þennan bragðaref.“ Klippa: Domino's Körfuboltakvöld - Zvonko og ÍR Domino's Körfuboltakvöld er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Domino's-deildir karla og kvenna í körfubolta og er á dagskrá öll föstudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland. Dominos-deild karla ÍR Körfuboltakvöld Mest lesið Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Golf Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Fótbolti Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Fótbolti Dagskráin í dag: Sófasunnudagur frá morgni til kvölds Sport Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Fleiri fréttir Elvar stigahæstur í grátlegu tapi Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Sjá meira
ÍR tapaði fyrir Njarðvík í miklum fallbaráttuslag á fimmtudagskvöldið en Breiðhyltingar geta enn fallið eftir tapið. Rætt var um frammistöðu Zvonko í þættinum í gær en hann gekk í raðir liðsins í lok janúar. Hann hefur ekki hrifið Benedikt. „Þetta er ekta Zvonko. Hann vill bara stela boltanum til að setja tvö stig hinu megin. Ég verð bara að segja: Ég get hann ekki. Þetta er orðið of mikið af hinu góða,“ sagði Benedikt. „Hann gerir bara hluti sem koma fram á tölfræðiblaðinu. Hann er til í að eltast við einhver fráköst, ekki öll. Hann er alltaf til í að skora. Hann er til í að gefa hann ef hann fær stoðsendingu en hann gerir ekkert fyrir varnarleikinn nema að þeir eru fjórir í vörn.“ Sævar Sævarsson tók í sama streng og hrífst ekki af varnarleik ÍR-liðsins. „Það er einn leikmaður í liðinu sem nennir að spila vörn af fullum krafti. Það er Colin Pryor og hann var ekki með í þessum leik,“ en Colin var ekki með vegna veikinda eftir bólusetningu vegna kórónuveirufaraldursins. „Ég hef talað um að Milka og Deane séu eins og skinka og ostur, því þeir passi svo vel saman. Fyrir mér er Zvonko eins og að setja remúlaði í bragðarefinn.“ „Þú ert með góðan ís og ert kominn með kökudeigið, jarðarberið og kókósbolluna en svo mátti Borce bæta við einu nammi; hann setti remúlaði. Eftir það finnst mér liðið orðið ónýtt. Þetta er kannski ýkt en þetta passar ekki í þennan bragðaref.“ Klippa: Domino's Körfuboltakvöld - Zvonko og ÍR Domino's Körfuboltakvöld er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Domino's-deildir karla og kvenna í körfubolta og er á dagskrá öll föstudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland.
Domino's Körfuboltakvöld er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Domino's-deildir karla og kvenna í körfubolta og er á dagskrá öll föstudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland.
Dominos-deild karla ÍR Körfuboltakvöld Mest lesið Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Golf Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Fótbolti Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Fótbolti Dagskráin í dag: Sófasunnudagur frá morgni til kvölds Sport Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Fleiri fréttir Elvar stigahæstur í grátlegu tapi Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Sjá meira