Kennir „hræðilegri skammsýni“ bæjaryfirvalda um vanda Blika Sindri Sverrisson skrifar 13. september 2021 15:30 Breiðablik sló út króatíska liðið Osijek og kom sér þannig í nýja riðlakeppni Meistaradeildar kvenna í haust. vísir/Hulda Margrét „Því miður er það hræðileg skammsýni bæjarfulltrúa í bæjarráði Kópavogs sem veldur því að Kópavogsvöllur stenst ekki kröfur UEFA.“ Þetta segir Pétur Hrafn Sigurðsson í grein þar sem hann gagnrýnir bæjaryfirvöld í Kópavogi vegna aðstöðuleysis meistaraflokka Breiðabliks í Evrópukeppnum í fótbolta.
Bæði karla- og kvennalið Breiðabliks hafa komist svo langt í Evrópukeppnum í ár að flóðlýsingin á Kópavogsvelli telst ekki nægjanlega góð fyrir leiki á svo háu stigi. Flóðljós vallarins, sem sett voru upp árið 2019, eru 500 lúx en kröfur UEFA í riðlakeppni Meistaradeildar kvenna kalla á að lýsingin sé 800 lúx. Karlalið Blika varð að mæta Aberdeen frá Skotlandi á Laugardalsvelli í 3. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar í sumar, því þar er gerð krafa um að lýsingin sé að minnsta kosti 1.200 lúx. Laugardalsvöllur er eini völlur landsins með meira en 500 lúx lýsingu og ef að Blikakonur fá ekki einhverja sérstaka undanþágu frá UEFA þurfa þær að mæta PSG, Real Madrid og Kharkiv á þeim velli. Laugardalsvöllur er hins vegar grasvöllur, öfugt við Kópavogsvöll, og alls kostar óvíst að hægt verði að spila þar í nóvember og desember. Vandamál Blikakvenna væri ekki til staðar ef Kópavogsbær hefði ákveðið að fjárfesta í lýsingu upp á 800 lúx eins og Pétur Hrafn, sem er bæjarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, lagði til. Í grein sinni á Vísi skrifar hann meðal annars: „Þegar verið var að endurnýja flóðljósin á Kópavogsvelli samþykkti bæjarráð í janúar 2019 að hafa 500 lux lýsingu á Kópavogsvöll sem er lágmarkskrafa KSÍ en fullnægir ekki skilyrðum UEFA. Ég lagði því til að lýsingin yrði 800 lux sem myndi fullnægja kröfum UEFA. Sú tillaga var felld í bæjarráði með öllum greiddum atkvæðum gegn mínu. Ég bókaði eftirfarandi. „Undirritaður telur ekki skynsamlegt að miða við lágmarkskröfur er varðar lýsingu á Kópavogsvöll sem er aðalleikvangur bæjarins. Mannvirkjunum er ætlað að nýtast næstu áratugi. Hætta er á að slíkar kröfur verði úreltar eftir nokkur ár og situr þá Kópavogur uppi með lýsingu sem ekki mætir kröfum nútímans. Eðlilegra er að miða lýsingarkröfur við 800 lux.“ Bæjarstjórinn í Kópavogi Ármann Kr. Ólafsson sá ástæðu til að leggja fram eftirfarandi bókun: „Ákvörðun um lýsingu stenst þær kröfur sem gerðar eru til lýsingar á knattspyrnuvöllum.““ „Kannski verður erfiðasta hindrunin á þeirri leið ákvörðun bæjarfulltrúanna“ Pétur Hrafn segir bæjarráð Kópavogs hafa sparað sér aurinn en hent krónunni, og bendir á að tugir milljóna hafi verið í húfi fyrir karlalið Breiðablik í einvíginu við Aberdeen, sem og hjá kvennaliðinu sem fær til að mynda 7,5 milljónir (50.000 evrur) fyrir hvern sigur í riðlakeppninni og tryggði sér 75 milljónir króna (500.000 evrur) fyrir að komast í riðlakeppnina. „Knattspyrnudeild Breiðabliks er stærsta knattspyrnudeild landsins. Bæði kvenna- og karlaliðin eru í toppbaráttu á Íslandi, bæði lið eru vel skipuð leikmönnum á besta aldri sem eiga framtíðina fyrir sér. Fjöldi efnilegra leikmanna munu skila sér í meistaraflokkana á næstu árum. Breiðablik hefur alla burði til að ná árangri í Evrópukeppnum. Kannski verður erfiðasta hindrunin á þeirri leið ákvörðun bæjarfulltrúanna frá því í janúar 2019 sem gerir það að verkum að liðin munu ekki geta spilað evrópuleiki sína á heimavelli,“ segir Pétur. Grein Péturs má lesa í heild sinni með því að smella hér.
Meistaradeild Evrópu Breiðablik Sambandsdeild Evrópu Kópavogur Tengdar fréttir „Þið takið þær hundrað prósent“ Ásta Eir Árnadóttir tók sér stutta pásu frá störfum sínum á markaðsdeild IKEA í hádeginu til að sjá hvaða stórliðum hún mætir í Meistaradeild Evrópu í vetur. Hún var nokkuð hress eftir að Blikar drógust gegn Paris Saint-Germain, Real Madrid og Kharkiv frá Úkraínu. 13. september 2021 12:05 Breiðablik í riðli með PSG og Real Madrid Breiðablik er í riðli með Paris Saint-Germain, Real Madrid og Kharkiv í Meistaradeild Evrópu. Dregið var í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss í dag. 13. september 2021 11:25 Breiðablik og heimavöllurinn Kvennalið Breiðabliks hefur skrifað nafn sitt í knattspyrnusögu landsins með því að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu þar sem 16 bestu knattspyrnulið álfunnar leika. 13. september 2021 10:31 Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich Enski boltinn „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Enski boltinn Darius Morris látinn aðeins þrjátíu og þriggja ára að aldri Körfubolti „Við höldum bara áfram þangað til að leikurinn er búinn“ Körfubolti HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Handbolti „Við gleymum okkur á veiku hliðinni“ Körfubolti Uppgjör: Keflavík - Grindavík 84-83 | Ótrúlegur endir og allt jafnt í einvíginu Körfubolti Girona í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu og tryggði Real í leiðinni titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Girona í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu og tryggði Real í leiðinni titilinn Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar „Lítur ekki vel út með Elmar, ég er hræddur um að þetta sé svipað og hjá Eiði“ Real Madrid náði fjórtán stiga forskoti á toppnum Kane skoraði en Bayern tapaði Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Uppgjörið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Eyjamenn byrja fótboltasumarið ekki vel Kristín Dís og Þórdís fögnuðu sigri en það gekk illa hjá Halmstad strákunum Diljá og félagar töpuðu toppslagnum á heimavelli Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Þórir bæði með mark og stoðsendingu Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Glódís Perla þýskur meistari annað árið í röð Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Með sjö í þremur: „Kannski margir sem afskrifa mann en mér finnst ég eiga nóg eftir“ Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Óvænt úrslit í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ „Ég er spennt að fara heim að sofa“ Luton mistókst að koma sér úr fallsæti „Við vissum að við þyrftum að þjást“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - FH 3-0 | Blikar héldu uppteknum hætti Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 0-2 | Fyrstu mörkin og fyrsti sigurinn hjá Stólunum Sveindís sneri aftur í stórsigri Wolfsburg Ísak skoraði og Dusseldorf enn í baráttunni um sæti í efstu deild Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland Sjá meira
„Þið takið þær hundrað prósent“ Ásta Eir Árnadóttir tók sér stutta pásu frá störfum sínum á markaðsdeild IKEA í hádeginu til að sjá hvaða stórliðum hún mætir í Meistaradeild Evrópu í vetur. Hún var nokkuð hress eftir að Blikar drógust gegn Paris Saint-Germain, Real Madrid og Kharkiv frá Úkraínu. 13. september 2021 12:05
Breiðablik í riðli með PSG og Real Madrid Breiðablik er í riðli með Paris Saint-Germain, Real Madrid og Kharkiv í Meistaradeild Evrópu. Dregið var í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss í dag. 13. september 2021 11:25
Breiðablik og heimavöllurinn Kvennalið Breiðabliks hefur skrifað nafn sitt í knattspyrnusögu landsins með því að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu þar sem 16 bestu knattspyrnulið álfunnar leika. 13. september 2021 10:31