Óttast föður sinn sem eltir þær á röndum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. nóvember 2021 16:30 Lögreglustjórinn á Suðurnesjum rannsakaði málið. Vísir/Þorgils Karlmaður á Suðurnesjum hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. desember. Landsréttur staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þess efnis. Karlmaðurinn sætir ákæru fyrir fyrir stórfelld brot í nánu sambandi gegn fjórum dætrum sínum og fyrrum eiginkonu.
Honum er gefið að sök að hafa beitt dætur sínar síendurteknu og alvarlegu ofbeldi, líkamlegu og andlegu, auk þess að hafa brotið gegn elstu dóttur sinni og systur hennar umsáturseinelti, móðgandi og smánandi skilaboðum og hótunum eftir að þær voru vistaðar utan heimilis hjá fósturfjölskyldum. Fram kemur í gæsluvarðhaldsúrskurðinum að systurnar séu mjög hræddar við föður sinn. Barnavernd í bæjarfélagi þeirra komst að þeirri niðurstöðu í ágúst 2020 að leggja fram kæru á hendur föðurnum vegna gruns um ofbeldi gagnvart dætrunum fjórum. Var hann grunaður um að hafa slegið þær með belti, skóm og fleiru. Í kæru barnaverndar kom fram að dætur hans hefðu lýst því að faðir þeirra væri mjög oft reiður, færi með þær inn í herbergi þar sem hann lokaði og læsti hurðinni, drægi niður gluggatjöldin og lemdi þær þar til þær hættu að gráta. Þá báru þær um að móðir þeirra reyndi stundum að hjálpa þeim en þá yrði hún fyrir barðinu á honum. Þær sögðu föður sinn lemja oft móður þeirra en þau rifust stöðugt. Eftir að systrunum var komið fyrir hjá fósturfjölskyldum hefur faðirinn ítrekað reynt að nálgast þær og rofið nálgunarbann með því að reyna að hafa endurtekið samband við þær. Bæði með því að senda vinabeiðnir og skilaboð á Facebook, sitja fyrir þeim við skóla eða æfingar auk þess að aka fram hjá fósturheimilum þeirra. Vitni staðfesta þetta við lögreglu. Þá brjálaðist faðirinn þegar hann taldi dóttur sína vera komin í samskipti við ungan dreng. Hótaði hann að vinna drengnum mein í samtali við lögreglumenn. Lögreglustjóri taldi í rökstuðningi sínum fyrir gæsluvarðhaldi ljóst að faðirinn héldi áfram brotum sínum. Á það féllst héraðsdómur og Landsréttur sömuleiðis.
Dómsmál Fjölskyldumál Heimilisofbeldi Mest lesið Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Innlent Fleiri fréttir Eltihrellirinn langoftast fyrrverandi maki Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Sjá meira