Stjóri Sameinuðu þjóðanna segir heiminn fara versnandi Samúel Karl Ólason skrifar 21. janúar 2022 10:23 Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, mun ræða áherslur sínar fyrir árið í dag. AP/Robert Bumsted Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir heiminn að mörgu leyti verri síðan hann hóf fyrsta kjörtímabil sitt fyrir fimm árum. Það sé vegna faraldurs kórónuveirunnar, veðurfarsbreytinga og aukinnar spennu ríkja á milli.
Þegar hann tók við störfum þann 1. janúar 2017 lagði hann sérstaka áherslu á að reyna að koma í veg fyrir átök í heiminum og tæka ójöfnuð. „Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur engin völd. Við getum haft áhrif. Ég get sannfært, ég get miðlað en ég hef engin völd,“ sagði Guterres í viðtali við AP fréttaveituna. Guterres segist þurfa að reyna að miðla mála deiluaðila á milli og stuðla til friðar á hverjum degi. Til dæmis hafi hann í þessari viku rætt við deiluaðila í Eþíópíu og leiðtoga hersins í Malí sem tóku nýverið völd þar í landi og frestuðu kosningum sem áttu að fara fram í næsta mánuði til 2026. Varðandi öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, sem hefur vald til að stuðla að heimsfriði og öryggi, meðal annar með refsiaðgerðum og jafnvel hernaðaraðgerðum, sagði Guterres að ráðið væri sundrað. Það ætti sérstaklega við fimm aðildarríki ráðsins sem hefðu neitunarvald. Rússar og Kína væru oft á öndverðum póli við Bandaríkin, Bretland og Frakkland um stór mál. Þar á meðal um nýjar refsiaðgerðir gegn Norður-Kóreu vegna ítrekaðra eldflaugatilrauna þeirra. Sjá einnig: Íhugar að hefja aftur tilraunir með langdrægar eldflaugar Guterres var einnig spurður út í það hvort Rússar, sem hafa komið hundrað þúsund hermönnum við landamæri Úkraínu, muni gera innrás. Hann sagðist telja að engin yrði innrásin. „Því ég trúi ekki á hernaðarlausnir á vandamálum og ég held að besta leiðin til að leysa þessi vandamál sé í gegnum samninga og viðræður,“ sagði Guterres. Hann ítrekaði að innrás Rússa í Úkraínu myndi hafa hörmulegar afleiðingar. Sjá einnig: Blinken og Lavrov funda í Genf í dag Guterres mun flytja ræðu í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í dag þar sem hann mun fara yfir helstu áherslur sínar á þessu ári. Í áðurnefndu viðtali nefndi hann þrjú atriði sem hann ætlaði sér að nefna í ræðunni. Það fyrsta væri ójöfnuður í dreifingu bóluefna gegn Covid-19 og þá sérstaklega í Afríku. Hann ætlar einnig að ræða um þörfina á því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og alþjóðafjárhagskerfið sem hann segir gífurlega ósanngjarnt í hag auðugra þjóða.
Sameinuðu þjóðirnar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Innlent Straumhvörf í veðrinu Innlent Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Átta forsetaefni klár með listana Innlent Ísraelar gera árás á Íran Erlent Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Innlent Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Innlent Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Innlent Sakaður um fjölda afbrota: Ungar stúlkur einar heima urðu skelkaðar þegar hann ruddist inn Innlent Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Innlent Fleiri fréttir Fyrstu loftárásir Ísraela í Íran frá 1979 Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Hefur mátt sitja undir svívirðingum um sjálfan sig Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Ísraelar gera árás á Íran Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Eiginmaður Sturgeon ákærður fyrir fjárdrátt Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Johnson í erfiðri stöðu Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Mikill mannskaði eftir sögulegt úrhelli í eyðimörkinni Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Hæsta vindmylla heims á landi reist í Danmörku Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Boðflennusæfíll hrellir Kanadamenn Mannskæð loftárás Rússa í Norður-Úkraínu Toppurinn á spírunni fundinn: „Margir í sjokki og enn að ná sér“ Kóralrif fölna á heimsvísu í fjórða skiptið á þremur áratugum Eins og hálfs árs úrkoma á einum sólarhring í Dubai Sjá meira