LRH hættir ekki á Facebook Samúel Karl Ólason skrifar 11. janúar 2022 20:04 Lögreglustöðin Hverfisgötu. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar ekki að hætta á Facebook. Þessi í stað hefur verið ákveðið að óska ekki eftir upplýsingum frá almenningi í gegnum einkaskilaboð á samfélagsmiðlinum. Persónuvernd gerði í fyrra athugasemd við notkun lögregluembætta á Facebook.
Sú athugasemd byggði á því að upplýsingar og gögn sem lögreglan fengi í gegnum Facebook endaði í höndum erlends stórfyrirtækisins. Um er að ræða frumkvæðisathugun vegna færslu þar sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskaði eftir upplýsingum frá almenningi í gegnum einkaskilaboð Facebook. Þær upplýsingar tengdust glæp sem hafði verið framinn. Lögreglan á Suðurnesjum tilkynnti í dag að Facebooksíðu embættisins yrði lokað vegna ákvörðunarinnar. Sjá einnig: Lögreglan á Suðurnesjum lokar Facebook-síðu sinni Rætt var við Helgu Þórisdóttur, forstjóra Persónuverndar, í kvöldfréttum Stöðvar 2. Þar sagði hún að allar upplýsingar og gögn sem lögreglan fær í gegnum Facebook endi í höndum META, fyrirtækisins sem á samfélagsmiðilinn. Þaðan séu þær svo jafnvel seldar til þriðju aðila. „Þannig að þær eru komnar dálítið langt, upplýsingar um einhvern sem mögulega tengist glæp á Íslandi og sem er mögulega blásaklaus af þeim glæpi. Þannig að þetta er í raun útgangsatriðið og það sem ákvörðunin snerist að,“ sagði Helga. Hún sagði að ákvörðunin hefði einungis tekið til þeirra upplýsinga þegar einhver er bendlaður við glæp. „Ef ætlunin er að nota samskiptamiðla einungis til þess að greina frá viðburðum og tilkynningum um almannavarnir og hættu eða eitthvað slíkt, þá er það ekki bannað og ekki tekið á því.“ Helga sagði þetta vandmeðfarið. „Þetta er eins og ef Covid-göngudeildin færi allt í einu að biðla upplýsingum til sinna sjúklinga og biðja um samskipti á Facebook. Það væri glórulaust. Lögreglan á að geta varið sín kerfi ef hún er að kalla eftir viðkvæmum upplýsingum sem þarf að passa.“ Í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sem einnig var birt á Facebook, segir að síðan sé fyrst og fremst til þess að „koma mikilvægum skilaboðum til almennings, auðvelda samskipti, bæta og auka þjónustu við notendur og einnig að svara kalli nútímans um breyttar og fjölbreyttari samskiptaleiðir með því að fjölga þeim leiðum sem eru í boði.“ Þar segir einnig að í kjölfar ákvörðunar Persónuverndar í fyrra hafi verið farið yfir verklag og ákveðið að hætta að biðja um upplýsingar frá almenningi í gegnum miðilinn. Í stað þess verði aðrar leiðir nýttar. „Tekið skal fram að embættið veitir ekki persónugreinanlegar upplýsingar til aðila í gegnum samskiptamiðilinn heldur leiðbeinir fólki um að beina erindum í réttan farveg sé þess þörf. Því telur embættið að ekki sé tilefni til þess að hætta notkun þess á samfélagsmiðlinum í ljósi þess að um er að ræða mikilvægan vettvang fyrir lögreglu til að ná til almennings og auka sýnileika lögreglu í samfélaginu.“
Lögreglan Facebook Samfélagsmiðlar Persónuvernd Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Innlent Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Innlent Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Innlent Helga lenti einnig í vandræðum Innlent Líklegt að það styttist í brotmörk Innlent Fleiri fréttir Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Handteknir á hlaupum eftir vopnað rán í Reykjavíkurapóteki Björk varar við frumvarpi um sjókvíeldi Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Mikil gleði þegar Bergur komst í mark Segir engin annarleg sjónarmið að baki ákvörðun RÚV Hraun mjakast yfir varnargarð Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sjá meira