Yfirvöld loka Machu Picchu vegna mótmælanna Hólmfríður Gísladóttir skrifar 23. janúar 2023 09:12 Machu Picchu er eitt af sjö undrum veraldar. Getty Stjórnvöld í Perú hafa lokað einum vinsælasta ferðamannastað landins, Machu Picchu, vegna yfirstandandi mótmæla gegn nýjum forseta landsins. Þau segja ákvörðunina tekna til að vernda ferðamenn og almenna borgara.
Yfir 400 manns sem höfðu lagt leið sína að þessari mikilfenglegu virkisborg Inka sátu fastir þegar lestarsamgöngur voru lagðar niður á fimmtudag. Það var gert í kjölfar þess að skemmdir voru unnar á lestarteinum en yfirvöld hafa vísað ábyrgðinni á hendur mótmælendum. Búið er að flytja fólkið frá staðnum. Machu Picchu er eitt af sjö undrum veraldar og heimsóttur af um milljón manns á ári hverju. Sumir velja að ganga að virkisborginni eftir svokallaðri Inka-slóð, sem tekur nokkra daga. Henni hefur einnig verið lokað. Menningarmálaráðueytið í Perú hefur sagt að þeir sem hafa þegar keypt aðgangsmiða að Machu Picchu geti notað miðan í mánuð eftir að mótmælunum í landinu lýkur eða fengið endurgreitt. Tugir hafa látið lífið í mótmælunum en mótmælendur vilja forsetann, Dinu Boluarte, frá og krefjast nýrra þingkosninga. Þá krefjast þeir þess að forveri Boluarte, Pedro Castillo, verði látinn laus úr fangelsi. Hann hefur verið ákærður fyrir uppreisn og samsæri en neitar sök og segist réttmætur leiðtogi landsins. Evrópusambandið hefur fordæmt ofbeldið sem ríkir í landinu og valdbeitingu lögreglu.
Perú Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Vilja endurupptöku í máli Weinstein Erlent Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Vill hinn almenna launamann á þing Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Innlent Fleiri fréttir Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Sjá meira