Kína krefst þess að Ísland skipti sér ekki af innanríkismálum

Sendiráð Kína á Íslandi segir í yfirlýsingu að boðuð þátttaka Íslands í þvingunaraðgerðum vegna stöðu minnihlutahóps úígúr-múslima í landinu sé ástæða þess að íslenskur maður sé kominn á svartan lista kínverskra stjórnvalda, fyrir skrif í Morgunblaðið.

Kínverski fáninn á húni fyrir utan sendiráð ríkisins í Reykjavík.
Kínverski fáninn á húni fyrir utan sendiráð ríkisins í Reykjavík.
Auglýsing

Kín­verska sendi­ráðið á Íslandi segir í yfir­lýs­ingu á vef sínum í dag að þess sé kraf­ist að Ísland hætti að skipta sér af inn­an­rík­is­málum Kína og að ákvörðun Íslands um að taka þátt í boð­uðum refsi­að­gerðum Evr­ópu­sam­bands­ins og ríkja á Vest­ur­löndum vegna stöðu úígúr-múslima í Xinji­ang-hér­aði í Kína grafi alvar­lega undan sam­skiptum Kína og Íslands.

Í stuttri yfir­lýs­ingu sendi­ráðs­ins segir einnig að sendi­herra Íslands í Kína hafi verið kall­aður á teppið í utan­rík­is­ráðu­neyti lands­ins og að afstaða Íslands til „svo­kall­aðra mann­rétt­inda­vanda­mála“ í Xinji­ang-hér­aði byggi ekki á nokkru nema „lygum og mis­vísandi upp­lýs­ing­um.“

Einnig segir frá því í yfir­lýs­ing­unni að sú ákvörðun kín­verskra stjórn­valda að beita íslenskan mann sér­stökum refsi­að­gerð­um, sem fel­ast meðal ann­ars í far­banni til Kína, séu svar við boð­aðri þátt­töku Íslands í fyr­ir­hug­uðum þving­un­ar­að­gerðum vest­rænna ríkja, sem boð­aðar voru í mars.

„Við krefj­umst þess að Ísland skuli virða full­veldi, öryggi og þró­un­ar­hags­muni Kína og hætti að skipta sér af inn­an­rík­is­málum Kína undir yfir­skyni mann­rétt­inda­mála,“ segir í yfir­lýs­ingu kín­verska sendi­ráðs­ins.

Auglýsing

Guð­laugur Þór Þórð­ars­son utan­rík­is­ráð­herra stað­festi viðmbl.is í gær að til stæði að Ísland tæki þátt í boð­uðum þving­un­ar­að­gerðum gegn Kína vegna mann­rétt­inda­brota í Xinji­ang-hér­aði. „Við til­kynntum rík­is­stjórn­inni og utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis það 30. mar­s,“ sagði Guð­laugur Þór við vef­inn.

Mein­fýsnar lygar

Mað­ur­inn sem kom­inn er á svartan lista Kína heitir Jónas Har­alds­son. Hann hefur skrifað nokkrar greinar um Kína og Kín­verja í Morg­un­blað­ið, meðal ann­ars eina þar sem lagt var til að Ísland og önnur ríki gerðu fjár­kröfur á Kína vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunn­ar, sem Kína ætti sök á.

Í yfir­lýs­ingu kín­verska sendi­ráðs­ins segir að Jónas hafi vegið að hags­munum Kína með því að breiða út lygar á mein­fýs­inn hátt.

Íslensk stjórn­völd hafa þegar komið á fram­færi mót­mælum við full­trúa Kína vegna þess­ara aðgerða.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent