Grípa til smáauglýsinga vegna lítillar trúar á verkfærum þingmanna Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 10. júní 2021 11:54 Viðreisn birti smáauglýsingu í Fréttablaðinu í dag þar sem óskað var eftir skýrslu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um umsvif stærstu útgerðarfyrirtækja landsins í íslensku atvinnulífi. Þingmenn flestra flokka fóru fram á að skýrslan yrði gerð og var beiðnin samþykkt í þinginu fyrir jól.
Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, lagði beiðnina fram en þingmenn frá öllum flokkum nema Sjálfstæðisflokki, Miðflokki og Framsókn, settu nafn sitt við hana. Nú hálfu ári síðar hefur ekkert bólað á skýrslunni og segist Hanna Katrín hafa litla trú á þeim verkfærum sem þingmenn hafa til að kalla eftir skýrslu, sem þingið hefur þegar beðið um. Þess vegna ákvað Viðreisn að auglýsa eftir skýrslunni á smáauglýsingasíðu Fréttablaðsins undir dálkinum „Tapað – Fundið“. HVAR ER SKÝRSLAN? er yfirskrift auglýsingarinnar, sem virðist nýstárleg leið flokks til að ýta á eftir ráðherra í máli sem þessu, þó hún sé eflaust einnig til þess fallin að vekja athygli fólks á málinu: „Svör óskast. Almannahagsmunir eru undir,“ segir í lok auglýsingarinnar. Skortur á virðingu fyrir löggjafarvaldinu „Málið er það að þó að Alþingi samþykki einum rómi svona skýrslu og að ráðherra fái mjög skýr fyrirmæli Alþingis um það þá strandar báturinn þar,“ segir Hanna Katrín, sem er farið að lengja eftir skýrslunni, en hún ræddi málið í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hún segir þingmenn ekki hafa nein verkfæri til að knýja fram gerð skýrslunnar eftir að búið er að biðja um hana á þingi. „Ég get farið upp í pontu og kvartað og ég get farið í fjölmiðla en á endanum verður það bara eitthvað leiðindamjálm í mér vegna þess að það hefur engan þunga. Við höfum ekki önnur úrræði því miður. Ég veit ekki hvað er hægt að gera annað. Kannski snýst þetta að einhverju leyti bara um virðingu framkvæmdarvaldsins fyrir löggjafarvaldinu.“ Viðreisn birti einnig myndband sem fór í dreifingu á samfélagsmiðlum í morgun þar sem lýst er eftir skýrslunni og óskað eftir svörum frá ráðherranum. Auglýsingarnar minna nokkuð á herferð sem varð nokkuð fyrirferðarmikil á síðasta ári þegar hópur fólks auglýsti eftir nýju stjórnarskránni. Mikilvægt innlegg í umræðu um auðlindaákvæði Skýrslan, sem farið var fram á að ráðherrann léti gera, á að varpa ljósi á ítök tuttugu stærstu útgerðarfyrirtækja landsins í íslensku atvinnulífi. Hanna Katrín segir þetta afar mikilvægt innlegg í umræðuna um auðlindaákvæði í stjórnarskrá og framtíðarfyrirkomulag á eignarhaldi sjávarauðlindarinnar. „Ég held líka að það sé óþolandi fyrir þá sem eru að stunda sjávarútveg, þessa mikilvægu atvinnugrein sem við byggjum svo mikið á, að vera alltaf þetta bitbein sem þau eru. Og allar staðreyndir sem við drögum á borðið, þær að minnsta kosti tryggja það að umræðan verður byggð á þeim en ekki einhverjum sögusögnum,“ sagði Hanna Katrín að lokum.
Viðreisn Alþingi Alþingiskosningar 2021 Auglýsinga- og markaðsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs Innlent Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Innlent Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Halla þótti standa sig best Innlent „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Innlent Þetta er vitað um árásarmanninn Erlent Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Innlent Fleiri fréttir Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Munu lappa upp á vatnspóstinn í Aðalstræti 300 kröfur um húsleit og 294 um símahlustun síðustu fimm ár Tvö innbrot á heimili og líkamsárás með kylfu og piparúða Vann fimmtíu milljónir króna Sjá meira