Ekkert „ole, ole“ hjá United undir stjórn Solskjærs í Meistaradeildinni: Sjö töp í ellefu leikjum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. september 2021 08:00 Manchester United hefur ekki gengið vel í Meistaradeild Evrópu undir stjórn Ole Gunnars Solskjær. getty/FreshFocus Manchester United tapaði fyrir Young Boys í fyrsta leik sínum í Meistaradeild Evrópu á tímabilinu. United hefur tapað meirihluta leikja sinna undir stjórn Ole Gunnars Solskjær í Meistaradeildinni síðan hann tók við liðinu.
United komst yfir í leiknum í Bern í gær með marki Cristianos Ronaldo á 13. mínútu. Tuttugu mínútum síðar fékk Aaron Wan-Bissaka rautt spjald fyrir brot á Christopher Martins. United átti ekki skot að marki Young Boys eftir það. Silvan Hefti jafnaði fyrir svissneska liðið á 66. mínútu og þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma skoraði Theoson Jordan Siebatcheu sigurmark heimamanna eftir mistök Jesses Lingard. Solskjær hefur stýrt United í ellefu leikjum í Meistaradeildinni síðan hann tók við liðinu í desember 2018. Rauðu djöflarnir hafa tapað sjö af þessum leikjum. Tölfræðingarnir á Opta bentu á þá staðreynd að þrettán prósent af öllum tapleikjum United í Meistaradeildinni frá upphafi hefðu komið undir stjórn Solskjærs þrátt fyrir að hann hafi bara stýrt liðinu í tæplega fimm prósent leikja þess í keppninni. 13% - Manchester United have lost seven of their 11 UEFA Champions League matches under Ole Gunnar Solskjær. 13% of their total defeats in the competition have come under Solskjær (7/54), despite the Norwegian only being in charge for 4.8% of their matches (11/231). Fall. pic.twitter.com/5e49OVY63B— OptaJoe (@OptaJoe) September 14, 2021 United komst ekki upp úr sínum riðli í Meistaradeildinni á síðasta tímabili. Þar reyndist tap fyrir Istanbul Basaksehir á útivelli afar dýrt. Næsti leikur United í Meistaradeildinni er gegn Villarreal á Old Trafford 29. september. Þessi lið mættust í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á síðasta tímabili. Villarreal vann þann leik eftir maraþonvítakeppni.
Meistaradeild Evrópu Tengdar fréttir Harry Maguire segist ekki kenna liðsfélaga sínum um tapið gegn Young Boys Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, var að vonum svekktur eftir 2-1 tap liðsins gegn Young Boys í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Liðsfélagi hans, Jesse Lingard, gaf heimamönnum sigurmarkið á silfurfati á lokamínútu leiksins, en Maguire segist þó ekki kenna honum um tapið. 14. september 2021 20:03 Seinasta spyrna leiksins tryggði Young Boys sigur gegn United Manchester United gerði 1-1 jafntefli við svissneska liðið Young Boys í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu þegar að liðin mættust í Sviss í dag. Gestirnir frá Manchester-borg þurftu að spila manni færri seinasta klukkutíman eftir að Aaron Wan-Bissaka fékk að líta beint rautt spjald. 14. september 2021 18:45 Mest lesið „Það er ekkert sem stoppar Remy Martin“ Sport Arna spilar með FH næstu þrjú árin Íslenski boltinn Þórsara dreymir um heimavallarrétt Körfubolti Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti Bjarki Már og félagar í góðri stöðu Handbolti PSG mætir Lyon í undanúrslitum Fótbolti Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport „Greinilega áherslubreytingar hjá dómurum varðandi ástríðu og tilfinningar“ Körfubolti Fleiri fréttir Arna spilar með FH næstu þrjú árin PSG mætir Lyon í undanúrslitum Barcelona ekki í vandræðum með Brann Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Tonali ákærður á Englandi fyrir fimmtíu meint brot Sjáðu mörkin fimm úr úrslitaleik Breiðabliks og ÍA Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Ákærður og horfir fram á fangelsisdóm fyrir kossinn óumbeðna Ætlar að kynna ensku úrvalsdeildina fyrir sundlaug í stúkunni Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins „Ég er tilbúinn“ „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ „Flottur sigur og heilt yfir fín frammistaða“ Fimmtu undanúrslitin á sjö árum Umfjöllun: Breiðablik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum Lyon nokkuð örugglega í undanúrslit Grindvíkingar leggja niður yngri flokka Rasmus til Eyja Messi: Ég hætti þegar ég get ekki lengur hjálpað mínum liðsfélögum Skagamenn geta unnið fyrsta titil sinn í meira en tvo áratugi Meiðslavandræði á Man. City fyrir stórleikinn á móti Arsenal Sigurinn á Íslandi var „gjöf til úkraínsku þjóðarinnar“ Man. United sagt vilja fá stjóra Úlfanna í þjálfarateymið sitt Albert átti ekki bara eitt heldur tvö af flottustu mörkum umspilsins Haaland baðst afsökunar eftir leik Myndasyrpa frá tapinu grátlega gegn Úkraínu Þór/KA sækir markvörð til Bandaríkjanna Pólland síðasta þjóðin inn á EM „Mér finnst ég hafa nóg fram að bjóða í þessu liði“ Åge Hareide: Framtíðin er björt Sjá meira
Harry Maguire segist ekki kenna liðsfélaga sínum um tapið gegn Young Boys Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, var að vonum svekktur eftir 2-1 tap liðsins gegn Young Boys í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Liðsfélagi hans, Jesse Lingard, gaf heimamönnum sigurmarkið á silfurfati á lokamínútu leiksins, en Maguire segist þó ekki kenna honum um tapið. 14. september 2021 20:03
Seinasta spyrna leiksins tryggði Young Boys sigur gegn United Manchester United gerði 1-1 jafntefli við svissneska liðið Young Boys í fyrstu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu þegar að liðin mættust í Sviss í dag. Gestirnir frá Manchester-borg þurftu að spila manni færri seinasta klukkutíman eftir að Aaron Wan-Bissaka fékk að líta beint rautt spjald. 14. september 2021 18:45
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti