Veðurofsinn gengur yfir í kvöld og nótt Heimir Már Pétursson skrifar 25. janúar 2022 13:11 Vindhraðinn fer allt upp í 28 metra á sekúndu á höfuðborgarsvæðinu í dag. Myndin er tekin við Gróttuvita í morgun. Vísir/Vilhelm Millilandaflug fór úr skorðum í morgun vegna vonskuveðurs. Sjö flugferðum var aflýst og sex flugferðum seinkað fram á kvöld. Einnig hefur orðið röskun á innanlandsflugi en spáð er vondu veðri víðast hvar í dag.
Flugi Icelandair til Parísar, Amsterdam, Lundúna, Kaupmannahafnar og Dyflinnar var aflýst í morgun og Play felldi niður flug til Tenerife og Alicante vegna veðursins. Icelandair hefur einnig aflýst flugi til Seattle í Bandaríkjunum síðdegis. Þá hefur sex flugferðum Wizz Air, Easy Jet og Lufthansa sem áttu að fara frá Keflavíkurflugvelli fyrir hádegi og fram til klukkan þrjú verið frestað fram á kvöld. Allt innanlandsflug hefur einnig legið niðri í morgun en flugfélagið Ernir er þó enn með áætlun um að fljúga til Húsavíkur klukkan fimm mínútur í fjögur en veðrið er skárst á Norðausturlandi. Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia segir ekki hægt að nota landganga fyrir flugvélar í þeim veðurofsa sem verið hafi á Keflavíkurflugvelli í dag.Vísir/Vilhelm Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Ísavía segir vindhraða hafa áhrif á þjónustu við flugvélar á Keflavíkurflugvelli. „Landgöngubrýrnar hjá okkur voru teknar úr notkun á sjöunda tímanum í morgun. Það er erfitt að nota stigabíla sem flugþjónustufyrirtækin reka og taka farangur frá borði. Öryggisviðmiðin varðandi landganga eru fimmtíu hnútar sem eru tæpir 26 metrar á sekúndu. Vindhraðinn núna eftir hádegi samkvæmt þeim spám sem við höfum gæti farið upp í 73 hnúta eða 37,5 metra á sekúndu í hviðunum,“ segir Guðjón. Útlitið er því áfram tvísýnt á Keflavíkurflugvelli. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir mjög hvasst hafa verið sunnan og suðvestanlands í morgun. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir hvessa síðdegis á Vestur-, Suður- og Austurlandi en veðrið gangi niður á landinu í kvöld og nótt.Vísir „Þetta er vestanátt, ekki sú algengasta hér. Strengur suður af lægðarmiðju. Það eru líkur á að veðrið nái hámarki til dæmis hér á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum nú eftir hádegi,“ segir Einar. Vindstrengurinn gangi síðan austur- og norðureftir landinu. „Það er nú útlit fyrir að bæði á Hellisheiði og í Þrengslum verði erfið færð. Aðallega vegan blindu nú í eftirmiðdaginn og eftir hádegi. Það sama má segja austur með ströndinni. Feykihvasst til dæmis við Reynisfjall í Mýrdal og svo áfram austar í kvöld,“ segir Einar. Veður muni versna á fjallvegum á Vesturlandi í dag en Vestfirðir sleppi nokkuð vel. Veðrið muni hins vegar ganga yfir á þessum sólarhring. „Það verður komið hæglætisveður strax í nótt á landinu og lítur vel út á morgun. Það eru fleiri lægðir á leiðinni. Ein minniháttar aðfararnótt fimmtudags. Það muggar frá henni víða um landið. Sérstaklega vestantil um nóttina og morguninn. Síðan er útlit fyrir að það geri dálítið ákveðna leysingu hér á föstudag,“ segir Einar Sveinbjörnsson.
Veður Keflavíkurflugvöllur Reykjavíkurflugvöllur Fréttir af flugi Tengdar fréttir Í basli á leið yfir Hellisheiði Appelsínugul viðvörun er á suðvesturhorni landsins en afar hvasst er á þessum hluta landsins. Öllum flugferðum frá Keflavíkurflugvelli í morgun var aflýst og bílar eiga sumir hverjir í basli með að komast yfir Hellisheiðina. 25. janúar 2022 11:04 Ferðalöngum snúið við vegna vonskuveðurs Öllu flugi Icelandair, sem fara átti frá Keflavíkurflugvelli fyrir hádegi í dag, hefur verið aflýst vegna vonskuveðurs. Flugi Play til Tenerife og Alicante hefur sömuleiðis verið frestað um sólarhring. 25. janúar 2022 07:36 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Erlent Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Innlent „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Fleiri fréttir Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Vinstri græn aldrei með minna fylgi Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Sjá meira
Í basli á leið yfir Hellisheiði Appelsínugul viðvörun er á suðvesturhorni landsins en afar hvasst er á þessum hluta landsins. Öllum flugferðum frá Keflavíkurflugvelli í morgun var aflýst og bílar eiga sumir hverjir í basli með að komast yfir Hellisheiðina. 25. janúar 2022 11:04
Ferðalöngum snúið við vegna vonskuveðurs Öllu flugi Icelandair, sem fara átti frá Keflavíkurflugvelli fyrir hádegi í dag, hefur verið aflýst vegna vonskuveðurs. Flugi Play til Tenerife og Alicante hefur sömuleiðis verið frestað um sólarhring. 25. janúar 2022 07:36