Sveindís Jane komin í skærgrænt: Ég elska að skora mörk Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. desember 2021 09:31 Sveindís Jane Jónsdóttir hefur skipt úr appelsínugulu í skærgrænt. Hér er hún í búningi Wolfsburg. Instagram/@sveindisss Þýska stórliðið Wolfsburg kynnti íslensku landsliðskonuna Sveindísi Jane Jónsdóttur til leiks á miðlum sínum í dag. Það má sjá myndir af henni sem og viðtal við hana á Youtube-síðu Wolfsburg.
Sveindís Jane kvaddi íslenska landsliðið eftir sigur á Kýpur á þriðjudagskvöldið en þrátt fyrir að tímabilið sé búið hjá liðsfélögum hennar Kristianstad þá er í raun annað tímabil í fullum gangi hjá íslenska landsliðsframherjanum. Lánssamningur Sveindísar hjá Kristianstad rennur út um áramót og hún er að fara að spila með þýska liðsins Wolfsburg sem hafði samið við hana fyrir ári síðan. View this post on Instagram A post shared by VfL Wolfsburg Frauenfussball (@vfl.wolfsburg.frauen) Wolfsburg bauð Sveindísi velkomna á miðlum sínum í gær og birti myndir af henni í skærgrænum búningi liðsins. Sveindís fær treyju númer 32 hjá Wolfsburg en hún hefur spilað númer 23 hjá íslenska landsliðinu og sænska liðinu. Þýska landsliðskonan Sara Doorsoun spilar hins vegar númer 23 hjá Wolfsburg. Sveindís kynnti sig fyrir stuðningsmönnum Wolfsburg á Youtube-síðu félagsins. Hún talaði reyndar á ensku en mun eflaust fara strax að vinna í þýskunni. „Halló. Ég heiti Sveindís Jane Jónsdóttir, ég spila númer 32 og er framherji,“ byrjaði okkar kona en af hverju Wolfsburg? „Ég vildi spila fyrir virkilega gott lið og Wolfsburg er eitt besta lið í heimi. Ég er því mjög ánægð með að vera komin hingað,“ sagði Sveindís. „Ég spila sem framherji og elska að skora mörk. Ég er góð í því og ég er líka mjög fljót. Það eru vopnin sem ég hef,“ sagði Sveindís. „Ég myndi segja að ég sé vingjarnleg en ég get verið svolítið feimin. Þegar þú kynnist mér þá er ég ekki feimin lengur,“ sagði Sveindís. „Ég vil vinna alla leiki og ég spila fótbolta af því að sigurtilfinningin er svo góð. Ég vil kynnast þeirri tilfinningu í hvert skipti sem ég spila fótbolta,“ sagði Sveindís. „Það sem er mikilvægt er að við spilum saman sem eitt lið og séum góðar vinkonur. Við eigum síðan að fara inn á völlinn með það markmið að vinna alla leiki,“ sagði Sveindís. Sveindís kom að tíu mörkum í nítján deildarleikjum í Svíþjóð, skoraði sex mörk og gaf fjórar stoðsendingar. Hún var einnig markahæsta landsliðskona Íslands á árinu 2021 með fjögur mörk eftir að hafa skorað í þremur síðustu landsleikjum ársins. Þýska deildin er spiluð yfir vetrartímann ólíkt því í Svíþjóð sem er í gangi yfir sumarið. Það má sjá viðtalið við Sveindísi hér fyrir neðan. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=dzK0cAF4tgo">watch on YouTube</a>
Þýski boltinn HM 2023 í Ástralíu og Nýja-Sjálandi EM 2021 í Englandi Mest lesið „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Golf Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Fótbolti Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Fótbolti Fleiri fréttir Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Sjá meira