Sjáðu mörkin á Old Trafford, fernu Giroud, mörk Börsunga og Immobile bjarga stigi á Signal Iduna Park Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 3. desember 2020 08:31 PSG fagnaði sigri á Old Trafford í gær. Nú þarf liðið aðeins stig á heimavelli gegn İstanbul Başakşehir í lokaumferð riðlakeppninnar til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum. Martin Rickett/Getty Images Næstsíðasta umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu fór fram í gærkvöld og hér að neðan má sjá mörkin úr helstu leikjum miðvikudagsins. Sjá má mörk úr leikjum Manchester United og Paris Saint-Germain, mörkin fjögur sem Oliver Giroud skoraði fyrir Chelsea gegn Sevilla, mörk Börsunga í Ungverjalandi og að lokum mörkin tvö er Borussia Dortmund og Lazio gerðu 1-1 jafntefli. Paris Saint-Germain hefndi fyrir tapið gegn Manchester United í París með 3-1 sigri á Old Trafford í Manchester-borg í gær. Man United fer til Þýskalands og mætir RB Leipzig í úrslitaleik um hvort liðið kemst í 16-liða úrslit. Segja má að leikmenn frá Brasilíu hafi stolið fyrirsögnunum í leiknum. Fred fékk rautt í liði heimamanna á meðan Neymar skoraði tvívegis fyrir gestina og Marquinhos einu sinni. Marcus Rashford skoraði mark Man United. Klippa: Mörkin úr leik Man United og PSG Oliver Giroud fékk tækifæri í byrjunarliði Chelsea og nýtti það svona líka vel. Hann skoraði öll fjögur mörk liðsins í 4-0 útisigri á Sevilla. Var þetta fyrsta tap Sevilla í keppninni í ár. Klippa: Giroud skoraði fjögur gegn Sevilla Barcelona vann öruggan 3-0 sigur á Ferencvárosi í Ungverjalandi í gær. Antoine Griezmann og Martin Braithwaite skoruðu báðir í öðrum leiknum í röð. Ousmane Dembélé bætti við þriðja markinu. Klippa: Þægilegt hjá Barcelona í Ungverjalandi Ciro Immobile bjargaði stigi fyrir Lazio gegn sínum gömlu félögum í Borussia Dortmund er liðin gerðu 1-1 jafntefli á Signal Iduna Park í Þýskalandi. Raphael Guerreiro hafði komið Dortmund yfir í fyrri hálfleik. Dortmund komið áfram í 16-liða úrslit en Lazio þarf að passa sig að tapa ekki gegn Club Brugge í síðustu umferð riðlakeppninnar. Klippa: Immobile bjargaði stigi gegn sínum gömlu félögum Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Fótbolti Meistaradeild Evrópu Tengdar fréttir Fred í aðalhluterki er PSG opnaði H-riðilinn upp á gátt, 750. mark Ronaldo og ferna Giroud Það er spenna í Meistaradeildinni í nokkrum riðlum er ein umferð er eftir. 2. desember 2020 21:50 Þrenna Kavechi dugði ekki til í sjö marka leik í Tyrklandi Það var mikið fjör í fyrstu tveimur leikjunum sem lokið er í dag í Meistaradeild Evrópu. 2. desember 2020 19:50 Mest lesið Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Dagskráin í dag: Sófasunnudagur frá morgni til kvölds Sport Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Fótbolti Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Enski boltinn Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Enski boltinn Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Fleiri fréttir Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Sjá meira
Sjá má mörk úr leikjum Manchester United og Paris Saint-Germain, mörkin fjögur sem Oliver Giroud skoraði fyrir Chelsea gegn Sevilla, mörk Börsunga í Ungverjalandi og að lokum mörkin tvö er Borussia Dortmund og Lazio gerðu 1-1 jafntefli. Paris Saint-Germain hefndi fyrir tapið gegn Manchester United í París með 3-1 sigri á Old Trafford í Manchester-borg í gær. Man United fer til Þýskalands og mætir RB Leipzig í úrslitaleik um hvort liðið kemst í 16-liða úrslit. Segja má að leikmenn frá Brasilíu hafi stolið fyrirsögnunum í leiknum. Fred fékk rautt í liði heimamanna á meðan Neymar skoraði tvívegis fyrir gestina og Marquinhos einu sinni. Marcus Rashford skoraði mark Man United. Klippa: Mörkin úr leik Man United og PSG Oliver Giroud fékk tækifæri í byrjunarliði Chelsea og nýtti það svona líka vel. Hann skoraði öll fjögur mörk liðsins í 4-0 útisigri á Sevilla. Var þetta fyrsta tap Sevilla í keppninni í ár. Klippa: Giroud skoraði fjögur gegn Sevilla Barcelona vann öruggan 3-0 sigur á Ferencvárosi í Ungverjalandi í gær. Antoine Griezmann og Martin Braithwaite skoruðu báðir í öðrum leiknum í röð. Ousmane Dembélé bætti við þriðja markinu. Klippa: Þægilegt hjá Barcelona í Ungverjalandi Ciro Immobile bjargaði stigi fyrir Lazio gegn sínum gömlu félögum í Borussia Dortmund er liðin gerðu 1-1 jafntefli á Signal Iduna Park í Þýskalandi. Raphael Guerreiro hafði komið Dortmund yfir í fyrri hálfleik. Dortmund komið áfram í 16-liða úrslit en Lazio þarf að passa sig að tapa ekki gegn Club Brugge í síðustu umferð riðlakeppninnar. Klippa: Immobile bjargaði stigi gegn sínum gömlu félögum Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu Tengdar fréttir Fred í aðalhluterki er PSG opnaði H-riðilinn upp á gátt, 750. mark Ronaldo og ferna Giroud Það er spenna í Meistaradeildinni í nokkrum riðlum er ein umferð er eftir. 2. desember 2020 21:50 Þrenna Kavechi dugði ekki til í sjö marka leik í Tyrklandi Það var mikið fjör í fyrstu tveimur leikjunum sem lokið er í dag í Meistaradeild Evrópu. 2. desember 2020 19:50 Mest lesið Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Dagskráin í dag: Sófasunnudagur frá morgni til kvölds Sport Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Fótbolti Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Enski boltinn Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Enski boltinn Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Fleiri fréttir Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Sjá meira
Fred í aðalhluterki er PSG opnaði H-riðilinn upp á gátt, 750. mark Ronaldo og ferna Giroud Það er spenna í Meistaradeildinni í nokkrum riðlum er ein umferð er eftir. 2. desember 2020 21:50
Þrenna Kavechi dugði ekki til í sjö marka leik í Tyrklandi Það var mikið fjör í fyrstu tveimur leikjunum sem lokið er í dag í Meistaradeild Evrópu. 2. desember 2020 19:50