Innlent

29 greindust innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Rúmlega 11 þúsund hafa greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins.
Rúmlega 11 þúsund hafa greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins. Vísir/Vilhelm

Alls greindust 29 með kórónuveiruna innanlands í gær. Sautján þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 59 prósent. Tólf voru utan sóttkvíar, eða 41 prósent.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is.

Alls eru nú 363 í einangrun, en voru 387 í gær. 839 eru nú í sóttkví, en voru 796 í gær. 432 eru nú í skimunarsóttkví.

Sex eru nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, sami fjöldi og í gær. Tveir eru á gjörgæslu, líkt og í gær.

Ellefu þeirra sem greindust innanlands í gær eru fullbólusettir og átján eru óbólusettir.

Þrír greindust á landamærum í gær – einn með mótefni og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilviki tveggja.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 135,3, en var 149,1 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 6,3, en var 7,1 í gær.

Alls hafa 11.307 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 33 andlát verið rakin til Covid-19 hér á landi frá upphafi faraldursins.

Tekin voru 1.421 einkennasýni í gær, 1.268 sýni á landsmærum og þá greindust 437 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×