Íslenskum föður gert að skila börnum sínum til móðurinnar Hólmfríður Gísladóttir skrifar 1. febrúar 2023 10:53 Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að föðurnum bæri að afhenda börnin innan fimmtán daga. Getty Landsréttur hefur úrskurðað að faðir með íslenskt ríkisfang skuli skila tveimur börnum sínum á lögheimili þeirra erlendis, þar sem þau búa með erlendri móður sinni.
Ef hann gerir það ekki sé móðurinni heimilt að fara fram á aðfaragerð til að koma börnunum heim. Dómstóllinn úrskurðaði í málinu 26. janúar síðastliðinn og staðfesti þar með niðurstöðu héraðsdóms frá 9. desember. Í gögnum málsins kemur fram að eftir stormasamt samband föðursins og móðurinnar og ásakanir beggja um ofbeldi hafi móðurinni verið dæmd forsjá barnanna 13. janúar 2022 af erlendum dómstól. Föðurnum, sem er búsettur á Íslandi, var dæmdur umgengnisréttur. Þann 5. ágúst síðastliðinn komu börnin hingað til lands til að dvelja hjá föður sínum í einn mánuð en ekki kom til þess þar sem faðirinn leitaði til fjölskyldusviðs ónefnds sveitarfélags, sem ákvað að börnin skyldu vera áfram hjá honum í allt að tvo mánuði, eða til 5. nóvember. Ákvörðunin var sögð tekin til að tryggja hagsmuni barnanna og staðfest með úrskurðum fjölskyldunefndar sveitarfélagsins. Móðirin skaut úrskurðunum til héraðsdóms en við meðferð málsins krafðist fjölskyldunefndin þess að vistunartíminn hjá föðurnum yrði framlengdur um átta mánuði. Héraðsdómur féllst á kröfu fjölskyldunefndarinnar en Landsréttur komst að gagnstæðri niðurstöðu og sagði ákvörðun nefndarinnar hafa skort lagastoð. Ákvörðunin hefði falið í sér skerðingu á forsjárrétti móðurinnar, enda færu rétturinn til að ráða búsetu barns óhjákvæmilega saman með réttinum til að ráða dvalarstað þess. Móðirinn höfðaði síðan mál á hendur föðurnum 18. október, til að fá börnin afhent. Héraðsdómur komst þá að þeirri niðurstöðu að áður hefði verið fjallað um hæfi móðurinnar og einnig lægi fyrir að hún myndi njóta stuðnings félagsmálayfirvalda í heimalandi sínu. Landsréttur tók sömu afstöðu í dómnum sem féll í síðustu viku og sagði ekki unnt að draga þá ályktun að alvarleg hætta væri á að afhending barnanna til móðurinnar myndi skaða þau andlega eða líkamlega eða koma þeim á annan hátt í óbærilega stöðu.
Börn og uppeldi Dómsmál Fjölskyldumál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna Innlent Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Innlent Fleiri fréttir Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Segir lág laun leikskólakennara mýtu Alltof mörg börn misstu af bólusetningu við mislingum Leyfisveitingin ekki brot á EES-samningnum Með 19 þúsund MDMA-töflur í ferðatöskunni Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Stofnaði lífi átta manna í hættu „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“ Fleiri löggur á leiðinni Seðlabankinn geti ekki annað en lækkað vexti Krefja Seðlabankann um vaxtalækkun Eldur í gámi við Sundabakka Alls konar fabúleringar um vinskapinn við Bjarna Ben Lætur staðar numið í pólitíkinni Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Sjá meira