Mjög stoltur en vill enda með bræðrunum á Húsavík Sindri Sverrisson skrifar 26. september 2022 11:00 Hallgrímur Mar Steingrímsson í viðtali á nýja vellinum sem KA hóf að spila heimaleiki sína á í sumar. Stöð 2 Hallgrímur Mar Steingrímsson bætti met Erlings Kristjánssonar á dögunum sem leikjahæsti leikmaður KA í efstu deild í fótbolta. Hann á nú öll helstu leikja- og markamet KA í fótbolta karla. „
Ég kom inn í KA 2009 sem óþroskaður krakki í rauninni, og gerði mér enga grein fyrir því að ég ætti möguleika á að ná þessum áföngum hjá eins stóru félagi og KA er. Ég er því mjög stoltur af að hafa náð þessum áföngum,“ segir Hallgrímur. Hann hefur nú leikið 128 leiki í efstu deild, einum fleiri en Erlingur sem reyndar er áfram leikjahæsti leikmaður í sögu handknattleiksdeildar KA með 577 leiki. „Ekkert að pæla í mörkum þegar ég var yngri“ Hallgrímur hefur alls leikið 277 knattspyrnuleiki fyrir KA, sem er félagsmet, og skorað 85 mörk sem er einnig félagsmet. Þar af eru 43 mörk í efstu deild sem er enn eitt félagsmetið. „Ég var svo sem ekkert að pæla í mörkum þegar ég var yngri. Meira að pæla í að leggja upp. Ég var í raun aldrei markaskorari og tel mig ekkert vera markaskorara, þó að mörkin hafi orðið fleiri og fleiri síðustu ár. Það er bara gaman en leikjametið finnst mér skemmtilegra,“ segir Hallgrímur en viðtal við hann má sjá hér að neðan. Klippa: Hallgrímur um KA-metin Hallgrímur á sinn þátt í uppgangi KA síðustu ár og frábæru tímabili liðsins til þessa en það er í harðri baráttu um Evrópusæti í Bestu deildinni. Hver er galdurinn? „Við erum með drullugott lið. Þetta er held ég besta lið sem ég hef verið partur af frá því að ég kom í KA. Þetta er betri hópur og það hafa geggjaðir strákar verið að koma upp undanfarin ár. Svo er það umgjörðin í kringum KA í heild sinni, frá því að við stefndum að því að komast upp 2016,“ segir Hallgrímur sem er einnig afar ánægður með nýja heimavöllinn og gervigrasið sem KA spilar á, á sínu félagssvæði. Draumurinn að ljúka ferlinum á Húsavík Hallgrímur, sem verður 32 ára á sunnudaginn, er frá Húsavík og hóf ferilinn með Völsungi. Þar vill hann líka ljúka ferlinum, helst með bræðrum sínum en Hrannar yngri bróðir Hallgríms spilar með honum hjá KA. „Draumurinn minn er auðvitað að spila að minnsta kosti eitt tímabil á Húsavík, þá helst með yngsta bróður mínum, Andra, og vonandi fleirum. Ég veit að Hrannar bróður minn kitlar í að spila einhver ár á Húsavík. En ég vil samt spila eins lengi og ég get í efstu deild. Við gefum þessu 4-5 ár áður en ég fer að leita eitthvað annað,“ segir Hallgrímur.
Besta deild karla KA Mest lesið Hálf áttræður Warnock gæti snúið aftur tveimur mánuðum eftir að hann hætti Fótbolti „Þetta eru leikirnir sem að maður vill spila“ Körfubolti „Núna skora ég á Njarðvíkinga að jafna baráttuna í stúkunni“ Körfubolti Fékk flösku í hausinn í gær og mætti með hjálm í dag Sport „Gæti orðið spennandi verkefni að vera í botnbaráttu“ Fótbolti Ísak og félagar nældu í stig gegn toppliðinu og geta enn farið beint upp Fótbolti Uppgjörið: Njarðvík - Valur 91-88 | Heimamenn knúðu fram oddaleik Körfubolti Bjarni Mark: Sendi hjarta til baka, enda elska ég þá alla Fótbolti „Mikilvægt að ná upp stöðugleika“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 3-1 | Vítaklúður Gylfa kom ekki að sök Íslenski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - KA 3-1 | Vítaklúður Gylfa kom ekki að sök Uppgjörið: ÍA - Vestri 3-0 | Öruggt hjá ÍA í slag nýliðanna Sjáðu frábært spil skila tveimur mörkum í Garðabæ „Við erum helvíti seigir“ Bragi Karl tryggði ÍR-ingum stig á elleftu stundu Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Fram 1-1 | Aftur komu Rúnarsmenn til baka Oliver með þrennu gegn gömlu félögunum Sextán ára stelpa skoraði í Bestu eftir stoðsendingu frá einni fimmtán ára „Hrafninn svífur yfir Vesturbænum“ Eysteinn ráðinn framkvæmdastjóri KSÍ Bláa flautan hjálpar bæði foreldrum og þjálfurum Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Uppgjör: Tindastóll - Fylkir 3-0 | Fyrsta tap nýliðanna Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 1-2 | Þrír norðansigrar í röð Rekin út af fyrir litla töf, Nadía reddaði Fanneyju og Blikar sjóðheitir Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Valur 1-2 | Meistararnir komu til baka suður með sjó „Eitthvað sem þær þurfa að svara fyrir á fundi á morgun“ Uppgjörið og viðtöl: FH - Þróttur 1-0 | Sigurmark á 96. mínútu Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - Stjarnan 5-1| Blikar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik „Spáin hjálpar okkur frekar en eitthvað annað“ Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Arnar í tveggja leikja bann Aðeins einn uppalinn Valsmaður í Bestu deild karla „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ „Tveir Víkingar? Ég er bara hissa“ Adam hundfúll og Arnar beint í símann Vatnstjónið vísar Stólum til Akureyrar Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Sjá meira