Tveir til viðbótar handteknir vegna morðrannsóknarinnar

Átta eru nú í gæsluvarðhaldi vegna morðs í Rauðagerði.
Átta eru nú í gæsluvarðhaldi vegna morðs í Rauðagerði. mbl.is

Tveir voru handteknir í aðgerðum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær í tengslum við rannsókn hennar á manndrápi í Rauðagerði um síðustu helgi. Átta aðrir eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. 

Þeir handteknu eru báðir erlendir ríkisborgarar, en ákvörðun um hvort krafist verður gæsluvarðhalds yfir þeim liggur ekki fyrir.

Ekki fást frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert