Undir lok síðasta árs var Fanney Inga keypt frá Val til sænska úrvalsdeildarfélagsins Hacken og sagði í yfirlýsingu Vals að kaupverðið hafi verið upphæð sem hefði ekki sést í íslenska kvennaboltanum til þessa.
Þrátt fyrir unga aldur hefur þessi öflugi markvörður staðið vaktina í marki íslenska kvennalandsliðsins undanfarið en samkeppnin þar er hörð og er Cecilía Rán Rúnarsdóttir, sem er á láni hjá ítalska félaginu Inter Milan og var valinn í lið ársins í ítölsku úrvalsdeildinni í fyrra, að gera alvöru tilkall um sæti í byrjunarliði Íslands.
„Fyrst og fremst hugsað út frá mér“
Aðspurð hvort skrefið út til Svíþjóðar sé tekin með það að einhverju leiti í huga að verða betur í stakk búin fyrir þá samkeppni segir Fanney svo ekki vera.
„Ég er fyrst og fremst að taka þetta skref fyrir mig. Mig langar að verða betri leikmaður. Með því að verða betri leikmaður sjálf get ég vonandi ýtt áfram á þessa samkeppni sem er í landsliðinu. Við viljum allar verða betri og á sama tíma hjálpa hvor annarri að fara upp á næsta gæðastig. Fyrst og fremst er þetta hugsað út frá mér en auðvitað vill maður líka spila.“
Sambandið milli markvarða íslenska landsliðsins sé gott. Stemningin frábær milli hennar, Cecilíu Ránar og Telmu Ívarsdóttur sem hafa myndað markvarðarteymi íslenska landsliðsins upp á síðkastið.
„Þær eru algjörir meistarar Telma og Cecilía og búið að vera frábært að æfa með þeim. Svo er það bara þjálfarinn sem að lokum tekur ákvörðunina um það hver okkar spilar, við vitum það og munum bara gera hvað sem við getum til að styðja við bakið á hvor annarri. Við viljum að það sé samkeppni, bæði á æfingum sem og í leikjum, því þannig verðum við betri og landsliðið líka.“
„Á okkar degi erum við helvíti góðar“
Framundan er stórt ár hjá íslenska landsliðinu, hápunkturinn EM í Sviss í sumar en þar er Ísland í riðli með Sviss, Noregi og Finnlandi.
Er kominn EM fiðringur?
„Já það er kominn ákveðinn fiðringur. Fólk farið að kaupa miða, dregið í riðla um daginn og það var bara eins og við hefðum fengið að draga riðilinn sjálfar. En það er ákveðið markmið sem fylgir því og það verður gaman að fara og keppa í Sviss.“
Fanneyju lýst vel á möguleika Íslands má mótinu
Hversu langt getið þið náð?
„Ég held að við getum farið mjög langt. Tíminn verður bara að leiða það í ljós. Við erum búin að sjá að við getum strítt stærstu þjóðum heims. Þegar að við erum á okkar degi erum við helvíti góðar. Ég held að við getum strítt þeim mjög mikið í sumar.“