Fótbolti

Pabbar markaskoraranna mættust í Trópídeildinni

Sindri Sverrisson skrifar
Albert Guðmundsson var glaðbeittur í Laugardalnum í gær þar sem hann skoraði tvö mörk með öruggum vítaspyrnum.
Albert Guðmundsson var glaðbeittur í Laugardalnum í gær þar sem hann skoraði tvö mörk með öruggum vítaspyrnum. vísir/vilhelm

Landsliðsmennirnir þrír sem skoruðu fyrir Ísland í 4-0 sigrinum gegn Liechtenstein í undankeppni HM í fótbolta í gær eru allir af miklum fótboltaættum. Pabbar þeirra léku allir í Trópídeildinni á Íslandi sumarið 1994.

Stefán Teitur Þórðarson, Albert Guðmundsson og Andri Lucas Guðjohnsen sáu um að skora mörk Íslands í gær. Stefán Teitur leikur með Silkeborg í Danmörku, Albert með AZ í Hollandi og Andri Lucas með varaliði Real Madrid á Spáni.

Í Facebook-hópnum „Algjörlega óáhugaverðar fótboltastaðreyndir“ bendir blaðamaðurinn Ásgeir H Ingólfsson á þá staðreynd að pabbar markaskoraranna hafi spilað á sömu leiktíð í efstu deild Íslands árið 1994. Raunar léku pabbar sex leikmanna sem spiluðu fyrir Ísland í gærkvöld í Trópídeildinni þetta ár.

Stefán Teitur Þórðarson skoraði fyrsta mark Íslands í gær, í sínum fyrsta mótsleik.vísir/vilhelm

Stefán Teitur skoraði fyrsta markið í gær, í sínum fyrsta mótsleik fyrir Ísland. Foreldrar hans eru Íris Björg Þorvarðardóttir og Þórður Þórðarson sem bæði léku með ÍA. Þórður varð meðal annars Íslandsmeistari þrjú ár í röð, 1994-1996, og á að baki einn A-landsleik.

Albert skoraði í gær í fyrsta sinn í mótsleik fyrir Ísland en hafði áður gert fjögur mörk í tveimur vináttulandsleikjum. Hann skoraði af öryggi úr tveimur vítaspyrnum gegn Liechtenstein.

Albert er sonur Kristbjargar Helgu Ingadóttur og Guðmundar Benediktssonar sem líkt og sonurinn léku einnig bæði fyrir íslensku landsliðin. Albert á þó fleiri landsleiki að baki en foreldrarnir til samans og hefur nú skorað 6 mörk í 27 A-landsleikjum.

Andri Lucas Guðjohnsen innsiglaði 4-0 sigur Íslands gegn Liechtenstein. Hann er sonur Eiðs Smára Guðjohnsen og Ragnhildar Sveinsdóttur.vísir/vilhelm

Guðmundur lék með Þór í Trópídeildinni sumarið 1994 og þriðji markaskorarapabbinn er svo Eiður Smári Guðjohnsen sem lék þá með Val.

Eiður og Ragnhildur Sveinsdóttir, sem á að baki unglingalandsleiki, eru foreldrar Andra Lucasar. Andri hefur þegar skorað tvö mörk á örskömmum tíma með landsliðinu en á langt í land með að jafna markametið sem Eiður og Kolbeinn Sigþórsson deila en það er 26 mörk.

Öfugt við Þórð og Guðmund þá lék Eiður aðeins tvö tímabil á Íslandi. Það fyrra var 1994 þegar hann skoraði 7 mörk í 17 leikjum, öll áður en hann varð 16 ára.

Fyrirliðinn og Jón Dagur áttu líka pabba í Trópídeildinni

Þess má svo geta að þrír leikmenn til viðbótar, úr byrjunarliði Íslands í gær, eiga pabba sem að spiluðu í Trópídeildinni árið 1994. 

Bjarni Sveinbjörnsson, pabbi fyrirliðans Birkis, lék með Gumma Ben í liði Þórs. Þorsteinn Halldórsson, kvennalandsliðsþjálfari og pabbi Jóns Dags, lék í deildinni með liði FH.

Sjötti sonur leikmanns úr Trópídeildinni 1994 er svo Sveinn Aron, bróðir Andra Lucasar, sem kom inn á sem varamaður og nældi í vítaspyrnu og lagði upp lokamark leiksins fyrir bróður sinn.


Tengdar fréttir

Enn mögulegt að Ísland komist á HM í Katar

Eins ótrúlega og það kann að hljóma þá er enn mögulegt að íslenska karlalandsliðið í fótbolta komist á HM í Katar. Möguleikinn er vissulega mjög, mjög fjarlægur en riðillinn sem Ísland leikur í er einstaklega jafn.

Arnar Þór: Traust og virðing virkar í báðar áttir

Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari var spurður út í mál Jóhanns Bergs Guðmundssonar og Guðlaugs Victors Pálssonar eftir leikinn gegn Lichtenstein í kvöld. Hann sagði að traust og virðing virkaði í báðar áttir, það væri ekki bara bara hægt að gefa í aðra áttina.

Stefán Teitur: Geðveikt stoltur

Stefán Teitur Þórðarson kom íslenska liðinu í gang með því að skora fyrsta mark leiksins í 4-0 sigri á Liechtenstein. Skagamaðurinn var að spila í fyrsta sinn í byrjunarliði í keppnisleik og nýtti tækifærið sitt vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×