Dagurinn í myndum: „Þetta eru mjög spennandi tímar“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 3. mars 2021 22:11 Björgunarsveitafólk stendur vaktina við Keili í dag. Vísir/Vilhelm Þetta eru spennandi tímar fyrir jarðvísindin og á hverjum degi sem líður í þeim jarðhræringum sem nú standa yfir á Reykjanesi læra vísindamenn eitthvað nýtt. Þetta segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur. Síðast varð eldgos á svæðinu á þrettándu öld og nú er útlit fyrir að fljótlega kunni aftur að gjósa, þótt margt sé óljóst ennþá.
Vísindamenn, viðbragðsaðilar, fjölmiðlar og ekki síst almenningur hafa fylgst grannt með framvindunni líkt og meðfylgjandi myndir frá deginum í dag sýna glögglega. Björgunarsveitir og lögregla stýrðu aðgengi að svæðinu.Vísir/Egill Rögnvaldur Ólafsson og Kristín Jónsdóttir hafa staðið vaktina hjá almannavörnum og hjá Veðurstofu Íslands vegna jarðhræringanna á Reykjanesi.Vísir/Sigurjón Fjölmiðlar mættir. Hér má sjá þá Eggert Jóhannesson, ljósmyndara Morgunblaðsins, Anton Brink, ljósmyndari Fréttablaðsins, Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, og Jóhann K. Jóhannsson, fréttamaður Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar.Vísir/Egill „Líkurnar á því að það beri að túlka þetta sem byrjun á goshrinu þær hafa aukist, það lítur mjög sennilega út fyrir að við séum að upplifa það núna. Þessi merku tímamót, það hefur ekki gosið á Reykjanesi í átta hundruð ár, og það kann að vera að næstu tvö til þrjú hundruð árin verði gos nokkuð tíð, kannski tíu tuttugu sinnum muni gjósa á því tímabili,“ sagði Páll í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Björgunarsveitarfólk skráði niður ferðir allra þeirra sem fóru um svæðið, en aðeins fjölmiðlum og vísindamönnum var heimilt að fara um svæðið og aðeins í fylgd með björgunarsveit.Vísir/Vilhelm Björgunarsveitarmenn sem leiðbeindu fréttamönnum og vísindamönnum um svæðið voru vopnaðir gasmælum á borð við þennan hér svo unnt væri að mæla mögulega gasmengun í lofti.Vísir/Egill Páll segir erfitt að segja til um hvað gerist næst. „Reynslan sýnir okkur að þetta gengur þokkalega vel, þó höfum við nú þurft að upplifa það nokkrum sinnum að náttúran hefur gert eitthvað sem að við hreinlega höfðum ekki ímyndunarafl til þess að láta okkur detta í hug. Það kann að vera núna líka, við erum að læra nýja hluti á hverjum einasta degi núna,“ segir Páll og vísar til allra þeirra nýju gagna sem safnað er á hverjum degi og greiningu þeirra. „Þetta eru mjög spennandi tímar í náttúruvísindunum að upplifa þetta og nú skiptir gríðarlega miklu máli núna að mæla sem allra best hvað er í gangi til þess að reyna að skilja það, því að framtíðin hún ræðst af því. Vísindamenn Verðurstofunnar að störfum skammt frá Keili.Vísir/Vilhelm Blaðamannafundur með sérfræðingum klukkan fjögur í dag.almannavarnir Kristján Már Unnarsson fréttamaður fór yfir svæðið á þyrlu ásamt Arnari Halldórssyni tökumanni.Vísir/Arnar Keilir var tignarlegur í dag þrátt fyrir leiðinda veður og lélegt skyggni á köflum í dag.Vísir/Vilhelm
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Erlent Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Erlent Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Erlent Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Hver er Kári Hansen? Innlent Aukin virkni í gosinu Innlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Umferðartafir vegna elds í tengivagni Innlent Fleiri fréttir Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Aukin virkni í gosinu Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Umboðsmaður krefst skýringa á nýju lögreglumerki Þrír handteknir fyrir ógnandi hegðun í þremur aðskildum málum Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Sjá meira