Vésteinn flytur heim og verður afreksstjóri ÍSÍ Stefán Árni Pálsson skrifar 21. janúar 2023 13:56 Vésteinn, Ásmundur Einar og Lárus Blöndal skrifa hér undir samkomulag í Gautaborg. Vésteinn er með samning við ÍSÍ til næstu fimm ára. Vísir/vilhelm Mennta- og barnamálaráðuneytið og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands skrifuðu í dag undir samstarfssamning um stefnumörkun og uppbyggingu afreksíþróttastarfs á Íslandi.
Þetta kom fram á blaðamannafundi ÍSÍ og Mennta- og baranamálaráðherra í Gautaborg í dag. Vésteinn Hafsteinsson mun verða ráðinn Afreksstjóri ÍSÍ og mun samhliða því leiða nýjan starfshóp Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra, um stöðu og réttindi afreksíþróttafólks. Markmiðið er að umgjörð afreksíþróttastarfs verði eins og best verður á kosið þannig að afreksíþróttafólk okkar standi jafnfætis keppinautum sínum á alþjóðavísu. Vésteinn þekkir vel til þarfa afreksíþróttafólks, bæði sem þjálfari og fyrrverandi kringlukastari í fremstu röð. Vésteinn var valinn þjálfari ársins í Svíþjóð eftir að lærisveinar hans Daniel Ståhl og Simon Pettersson unnu gull og silfur á Ólympíuleikunum í Tókýó árið 2021. Hann hefur komið að fjölbreyttu íþróttastarfi í gegnum tíðina og þekkir umhverfið og fólkið vel. Vésteinn hefur starfað víða erlendis og er í dag starfandi hjá sænsku Ólympíunefndinni, en öll þessi reynsla mun nýtast í nýju starfi á Íslandi. Vésteinn er ráðinn til næstu fimm ára til að leiða umbótastarfið og fylgja eftir breytingartillögum starfshópsins í samvinnu við ráðuneytið og ÍSÍ, samhliða starfi sínu sem Afreksstjóri ÍSÍ. Starfshópi ráðuneytisins er ætlað að yfirfara og leggja til breytingar á umgjörð, löggjöf og öðru sem þurfa þykir til að stuðningur við afreksíþróttafólk hér á landi verði í fremstu röð. Honum er falið að skoða sérstaklega kostnaðarþátttöku keppenda og fjölskyldna þeirra í landsliðsstarfi og lýðréttindi afreksíþróttafólks innan almannatryggingakerfisins. Starfshópurinn er skipaður fulltrúum mennta- og barnamálaráðuneytisins, félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins og heilbrigðisráðuneytisins auk fulltrúa íþróttahreyfingarinnar og annarra haghafa. Stefnt er að því að hann ljúki störfum og skili ráðherra tillögum að breytingum fyrir 1. september nk. Starf afreksstjóra ÍSÍ felur í sér umsjón með Afreksstefnu ÍSÍ og ráðgjöf varðandi afreksstefnur sérsambanda ÍSÍ. Afreksstjóri ÍSÍ mun meðal annars vinna að framgangi Afreksíþróttamiðstöðvar ÍSÍ, undirbúningi íslenskra keppenda fyrir ólympíska viðburði og að markmiðasetningu í íslensku afreksíþróttastarfi til næstu ára. Rætt verður við Lárus Blöndal, forseta ÍSÍ og Véstein í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.
ÍSÍ Mest lesið Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Handbolti Ten Hag segir að eigendur United séu skynsamir og muni ekki reka hann Enski boltinn „Við erum helvíti seigir“ Íslenski boltinn Leverkusen býður stuðningsmönnum frítt flúr til minningar um tímabilið Fótbolti Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Fram 1-1 | Aftur komu Rúnarsmenn til baka Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Stór dagur fyrir Val Sport „Grét rosa mikið út af öllu og engu“ Sport Casemiro komst ekki í Copa América-hóp Brassa Fótbolti Staðfestir verst geymda leyndarmál fótboltans Fótbolti Styrmir og félagar komnir í sumarfrí Körfubolti Fleiri fréttir Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Dagskráin í dag: Stór dagur fyrir Val Ten Hag segir að eigendur United séu skynsamir og muni ekki reka hann Leverkusen býður stuðningsmönnum frítt flúr til minningar um tímabilið „Við erum helvíti seigir“ Casemiro komst ekki í Copa América-hóp Brassa Bragi Karl tryggði ÍR-ingum stig á elleftu stundu Styrmir og félagar komnir í sumarfrí Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Fram 1-1 | Aftur komu Rúnarsmenn til baka Fimm marka föstudagur hjá Inter Rúnar og félagar tryggðu sér titilinn með endurkomusigri Oliver með þrennu gegn gömlu félögunum Martin og félagar skelltu í lás gegn Bæjurum Andri skoraði og er markahæstur í Danmörku Staðfestir verst geymda leyndarmál fótboltans Draumagengi Guðrúnar heldur áfram Spilar með bróður sínum og fyrir föður sinn hjá Keflavík Sóley Margrét ætlar að verja Evrópumeistaratitilinn Nýliðarnir gerðu milljónarveðmál: „Hann átti ekki að segja neinum“ Sá besti í heimi á þessu CrossFit tímabili kom til Íslands til að æfa með BKG Segja vinslit hjá Tiger Woods og Rory McIlroy Kveðjuleikur Klopp í hættu? | „Meðvitaður um stöðuna“ „Big Baby“ dæmdur í fangelsi Sextán ára stelpa skoraði í Bestu eftir stoðsendingu frá einni fimmtán ára „Hrafninn svífur yfir Vesturbænum“ Eysteinn ráðinn framkvæmdastjóri KSÍ Cole Palmer valinn bestur í apríl Dortmund fær meira fyrir að tapa en vinna úrslitaleikinn Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Óskar hafi sett stjórninni afarkosti Sjá meira