Telur ekki að lengja eigi tíma milli bólusetninga svo sem flestir fái fyrri sprautu Vésteinn Örn Pétursson skrifar 2. mars 2021 21:19 Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Vísir/Vilhelm Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur ekki að lengja ætti tíma milli bólusetninga við Covid-19 hjá fólki svo hægt sé að gefa sem flestum hér á landi fyrri sprautu bóluefnis.
Jón Ívar Einarsson, prófessor við læknadeild Harvard-háskóla, sagði í viðtali í gær að hann teldi best að fara að dæmi Breta, með því að lengja bil á milli bólusetninga hjá fólki í þrjá mánuði í stað þriggja til fjögurra vikna. Þannig sé hægt að bólusetja sem flesta með fyrri sprautu, sem veitir talsverða vernd gegn skæðum veikindum af völdum Covid-19. Í viðtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag sagði Þórólfur að þessi möguleiki hefði verið skoðaður. Hann sé hins vegar ekki sammála Jóni Ívari. „Það helgast af því að ég held að það væri skynsamlegt að gera það ef við værum með mikið smit í samfélaginu. Þá myndi skipta miklu máli að ná útbreiðslu á bólusetningu eins fljótt og hægt er. Það er gert í Bretlandi og á fleiri stöðum,“ segir Þórólfurþ Hann bætir við að verndin sem fæst með fyrri sprautu sé lakari en sú sem fæst eftir tvær. Bóluefnin þrjú sem samþykkt hafa verið hér á landi eru öll gefin í tveimur skömmtum. Bóluefni Moderna og Pfizer eru gefin með nokkrum vikum milli skammta, en bóluefni AstraZeneca með þrjá mánuði á milli. „Menn geta verið að koma með mismunandi tölur um hver verndin er eftir eina sprautu en þá eru menn stundum að miða við hvort ein bólusetning komi í veg fyrir alvarleg veikindi, öll veikindi og svo framvegis. Ef fólk sem er bólusett er að veikjast, kannski vægt, þá er það með veiruna og getur þannig dreift henni áfram. Mér finnst miklu ólíklegra, eftir eina sprautu, að bólusetningin komi í veg fyrir dreifingu til annarra,“ segir Þórólfur. Hann telji því skynsamlegra að fullbólusetja fólk og búa þannig til hóp fólks sem muni ekki dreifa veirunni og fái lengri vernd. Hann telji ekkert liggja á í þessum efnum, þar sem lítið af smitum er í samfélaginu. Hjólin fari ekkert fyrr af stað Aðspurður gaf Þórólfur lítið fyrir að sú bólusetningaraðferð sem Jón Ívar mælir með myndi flýta fyrir því að hægt væri að slaka frekar á hömlum í samfélaginu. „Hvernig ætlarðu að koma hjólunum í gang frekar eftir eina sprautu en tvær? Erum við þá að tala um ]ferðabransann]? Hver er ferðavilji fólks? Það eru ekki meiri hömlur á landamærum hér heldur en víðast hvar annars staðar í Evrópu,“ segir Þórólfur. Hann telji það ekki svo að ef slakað yrði á hömlum á landamærunum myndu ferðamenn streyma til landsins. Hann bendir þá á að sóttvarnaaðgerðir hér á landi séu einhverjar þær rýmstu sem þekkist í Evrópu og víðar. „Þannig að ég bið nú menn aðeins um að hugsa málið heildrænt,“ segir Þórólfur. Hann segir þá að hraði bólusetninga hér á landi fari alfarið eftir hversu mikið fæst afhent og hversu hratt. Dreifingaráætlun bóluefna eftir lok marsmánaðar liggi ekki fyrir. „Áframhaldandi bólusetning og áframhaldandi spá um hvernig það verður mun bara helgast af því,“ segir Þórólfur. Samkvæmt bóluefni.is, sem er haldið úti af Almannavörnum og Landlæknisembættinu, hafa 12.644 einstaklingar fengið fulla bólusetningu hér á landi. Þá hafa 8.547 til viðbótar hafið bólusetingu með fyrri skammti.
Bólusetningar Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Erlent Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Innlent Karlremba sé komin í tísku Innlent Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Innlent Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Innlent Fleiri fréttir Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Hættuástand í Grindavík og æsispennandi forsetakosningar Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Sjá meira