Meistararnir síðastir í átta liða úrslit

KA/Þór er komið í undanúrslit.
KA/Þór er komið í undanúrslit. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Íslandsmeistarar KA/Þórs tryggðu sér í dag síðasta sætið í átta liða úrslitum Coca Cola-bikars kvenna í handbolta með 36:26-útisigri á Fjölni/Fylki.

Akureyrarliðið var með 21:10-forskot í hálfleik og reyndist seinni hálfleikur vera formsatriði.

Ásdís Guðmundsdóttir, Sofie Larsen og Sólveg Lára Kristjánsdóttir skoruðu fimm mörk hver fyrir KA/Þór. Kolbrún Arna Garðarsdóttir skoraði sjö fyrir Fjölni/Fylki.

KA/Þór mætir Stjörnunni í átta liða úrslitum. Víkingur og FH eigast einnig við, ÍBV og valur og loks Haukar og Fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert