Nökkvi valinn maður leiksins

Nökkvi Þeyr Þórisson í einum af síðustu leikjum sínum með …
Nökkvi Þeyr Þórisson í einum af síðustu leikjum sínum með KA. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Dalvíkingurinn Nökkvi Þeyr Þórisson var valinn maður leiksins hjá belgíska knattspyrnufélaginu Beerschot eftir sigur liðsins á útivelli, 4:0, gegn neðrideildaliðinu Knokke í bikarkeppninni þar í landi um síðustu helgi.

Nökkvi skoraði þriðja mark Beerschot í leiknum, hans fyrsta fyrir félagið sem keypti hann af KA fyrr í þessum mánuði.

Markið má sjá fremst í meðfylgjandi myndskeiði:



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert