Skelfilegt ástand í málefnum flóttafólks Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 18. júní 2021 12:01 Flóttafólk frá Tigray-héraði í Eþíópíu í búðum í Súdan. EPA-EFE/LENI KINZLI Aldrei hafa fleiri verið á flótta í heiminum en nú. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Sviðstjóri hjá Rauða krossinum segir stöðuna skelfilega.
Áttatíu og tvær milljónir eru nú á flótta og er þetta tvöfaldur fjöldi á við það sem var fyrir áratug. Að því er kemur fram í skýrslunni fjölgaði flóttamönnum um rúmar ellefu milljónir í fyrra. Þrátt fyrir að dregið hafi úr umsóknum um hæli og flutningum á milli landa, einkum vegna kórónuveirufaraldursins, hélt flóttamönnum sum sé áfram að fjölga og fjölgunin var sömuleiðis meiri en árið 2019. Atli Viðar Thorstensen, sviðstjóri á mannúðar- og hjálparsviði hjá Rauða krossinum á Íslandi segir stöðuna vægast sagt skelfilega. „Það að næstum 1 af hverjum 100 jarðarbúum sé á flótta er óviðunandi og ætti ekki að líðast. Því miður eru tölurnar að hækka þannig fleiri og fleiri eru að leggjast á flótta. Ástæðurnar eru margvíslegar. Það eru átök, það er mikil fátækt, svo eru loftslagsbreytingar að valda fólksflótta líka. Svo mætti lengi áfram telja. Þannig staðan er vægast sagt mjög slæm,“ segir Atli. Auka þurfi alþjóðlega samvinnu og beita sér fyrir friðsamlegri lausn deilumála til að sporna við þróuninni. Sömuleiðis sé þörf á að styðja við fátækar og stríðshrjáðar þjóðir. Þá segir hann þörf á að minna á þá staðreynd að fólk vilji helst vera heima hjá sér og það sé algjört neyðarúrræði að fara á flótta. „Níutíu prósent þeirra sem fara yfir landamæri, flýja heimaland sitt, eru að leita hælis í nágrannaríkjum sem oft eru líka fátæk og jafnvel óstöðug. Þannig þetta eru fyrst og fremst fátækari ríki sem eru að bera þessar þyngstu byrgðar varðandi aðstoð við flóttafólk og það er fólk frá þessum löndum sem er að flýja,“ segir Atli Viðar Thorstensen, sviðsstjóri hjá Rauða krossinum.
Flóttamenn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Erlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Innlent „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Innlent Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Erlent Fleiri fréttir Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Sjá meira