Ætla að opna hárgreiðslustofur og leyfa áhorfendur Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 22. febrúar 2021 17:36 Boris Johnson, breski forsætisráðherrann, með áætlunina í svartri möppu. Hann verður ef til vill ánægður að komast í klippingu þann 12. apríl ef áætlunin heldur. AP/Matt Dunham Skólar verða opnaðir á ný á Bretlandi þann 8. mars og fólk á dvalarheimilum má fá einn gest. Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, kynnti áform um afléttingu takmarkana í dag.
Áætlun Bretlandsstjórnar skiptist í fjóra hluta en greindum smitum á dag hefur fækkað mikið frá hápunktinum um áramótin. Á milli skrefanna fjögurra munu stjórnvöld safna saman gögnum og skoða þau til þess að ákveða hvort ráðlegt sé að halda áfram. Breytingarnar munu taka gildi á landinu öllu. Skólar opnaðir og hittingar utandyra Strax þann 8. mars verða skólar opnaðir á ný og Bretum verður leyft að hitta að hámarki einn utandyra, til dæmis til þess að fá sér kaffibolla saman. Íbúar dvalarheimila mega fá að hámarki einn gest en að öðru leyti eiga landsmenn enn að halda sig heima. Fyrsti hluti áætlunarinnar er tvískiptur en þann 29. mars verður heimilt að koma saman utandyra í sex manna hópum. Íþróttaiðkun utandyra verður leyfð á ný og tilskipun um að halda sig heima fellur úr gildi. Fólki verður þó enn ráðlagt að vinna að heiman. Allir í klippingu Stefnt er að því að heimila opnun hárgreiðslu- og naglastofa og annarrar starfsemi sem ekki telst bráðnauðsynleg þann 12. apríl. Loksins komast Bretar sum sé í klippingu. Bjórþyrstir Bretar geta svo mætt aftur á barinn þennan sama dag, en einungis utandyra. Líkamsræktarstöðvar, dýragarðar og sundlaugar verða opnaðar á ný og þrjátíu mega sækja jarðarfarir. Raheem Sterling skoraði sigurmark Manchester City gegn Arsenal um helgina en engir áhorfendur voru á vellinum til að fagna markinu. Það gæti breyst þann 17. maí.AP/Julian Finney Áhorfendur á íþróttaleikjum Þann 17. maí, sjálfan þjóðhátíðardag Norðmanna, verða samkomur utandyra takmarkaðar við þrjátíu og sex verður heimilt að hittast innanhúss. Hægt verður að setjast inn á krár eða í bíósal. Áhugafólk um íþróttir gleðst væntanlega yfir þeim tíðindum að til stendur að leyfa þúsund áhorfendur innanhúss og fjögur þúsund undir berum himni. Á stórum leikvöngum, til dæmis knattspyrnuvöllum, mega áhorfendur vera tíu þúsund. Síðasti hlutinn er svo þann 21. júní og er stefnt að því að afnema allar takmarkanir á samkomur þann dag.
Bretland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Innlent Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Erlent Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Innlent Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Erlent Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Innlent Fleiri fréttir Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Heita hefndum en freista þess enn að bendla Úkraínu við árásina Vísindamenn vilja friðlýsa vísindalega mikilvæg svæði á tunglinu Sagrada Familia verði loks tilbúin árið 2034 Flóttamannaaðstoðinni meinað að koma birgðum til hrjáðra Fjórir menn fyrir dómara vegna hryðjuverkanna Simon Harris nýr leiðtogi Fine Gael Sleppti pálmasunnudagsprédikun á síðustu stundu ISIS birtir hryllingsmyndbönd af árásinni Sjá meira