Astra-dagur verður líklega að Janssen-degi Kristín Ólafsdóttir skrifar 20. júní 2021 14:27 Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, dregur í handahófskenndar bólusetningar. Síðasta vikan er nú að renna upp. Vísir/vilhelm Fyrirhugaðri bólusetningu með bóluefni AstraZeneca á fimmtudag verður líklega frestað fram í vikuna á eftir, þar sem útlit er fyrir að efnið berist ekki til landsins í tæka tíð. Stefnt er að því að bólusetja í það minnsta tuttugu þúsund með bóluefnum Janssen og Pfizer á þriðjudag og miðvikudag – og mögulega verður bætt við Janssen-degi á fimmtudag. „
Við höfðum sett Astra-dag á plan í næstu viku upp á von og óvon að efnið kæmi til okkar en okkur sýnist að það muni ekki nást þannig að við þurfum að færa það aftur yfir í vikuna þar á eftir, alveg í lok júní, þannig að við stefnum á tvo stóra Astra-daga þarna 30. júní og 1. júlí,“ segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í samtali við fréttastofu. Um tuttugu þúsund manns eiga eftir að fá Astra-skammt en allir hafa þeir fengið fyrri skammtinn af efninu. Þá er nú að renna upp síðasta vika handahófskenndu árgangabólusetninganna. „Við erum að klára þá fyrsta skammtinn í þessari viku, verðum með stóran dag á þriðjudaginn sem er Janssen og á miðvikudaginn er líka stór Pfizer-dagur,“ segir Ragnheiður og reiknar með að tíu þúsund manns verði bólusettir hvorn daginn. „Svo rennum við svolítið blint í sjóinn með það hverjir verða eftir, hvað það er stór hópur sem óskar eftir bólusetningu en hefur ekki komist á settum tíma,“ segir hún. „Þannig að eftir klukkan tvö á þriðjudaginn og eftir klukkan þrjú á miðvikudaginn er þá kannski eitthvað uppsóp en við þurfum að átta okkur á því hvað þetta eru margir. Ef þetta verða mjög margir þurfum við líklega að skipuleggja einhverja aðra daga.“ Hugsanlega eigi þau fimmtudaginn upp á að hlaupa ef fram fer sem horfir með AstraZeneca-efnið. „Og getum þá kannski ef við eigum nóg Janssen-efni, að setja það á þann dag.“ Ragnheiður segir ekki ljóst hversu margir eigi eftir að koma í bólusetningu. „En þegar við höfðum uppsópsdag fyrir alla sem voru fæddir 75 og fyrr voru heimtur miklu minni en við bjuggumst við,“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Erlent Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Innlent Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Fleiri fréttir Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara í það minnsta fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Sjá meira