Hvað á stjórnin að heita? Snorri Másson skrifar 29. nóvember 2021 12:07 Yfirleitt var vísað til síðustu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur einfaldlega með nafni forsætisráðherrans. Önnur gælunöfn reyndust óeftirminnileg og skammlíf. Spurningin er núna hvort annars ráðuneytis Katrínar bíði sömu örlög. Vísir/Vilhelm Ný vika, ný ríkisstjórn, en hvað á barnið að heita? Það er of snemmt að segja en gárungarnir eru að vonum farnir af stað með nafngiftirnar.
Það er meðal annars í athugasemdum á Facebook hjá Vilhjálmi Árnasyni þingmanni, sem innir þar vini sína álits á aðventustjórninni, eins og hann kallar hana. Jú, aðventustjórnin er fín, segir Gísli Freyr Valdórsson, enda aðventan aðeins fjórar vikur. Jólastjórnin, leggur Björn Leví Gunnarsson til, með þrettán jólasveina innanborðs. Höfuðborgarstjórnin segir sá þriðji og þar er vísað til þeirrar staðreyndar að allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru á suðvesturhorni landsins. Þórdís Kolbrún er ein ráðherra úr Norðvesturkjördæmi en enginn ráðherra er úr Norðaustur. Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata viðrar enn aðra hugmynd í samtali við fréttastofu. „Ég myndi frekar kalla hana hringekjustjórn. Hún byggir á þessari hringekju sem yfirkjörstjórnin í Norðvesturkjördæmi setti af stað og er núna í dag með alveg svimandi hringekju ráðherra, þannig að það fyndist mér réttnefni,“ segir Andrés, sem telur sinn gamla flokk Vinstri græna illa leikna í nýju stjórnarsamstarfi. „Ég veit ekki hvaða umhverfissinni getur verið ánægður með Guðlaug Þór“ Stjórnarandstaðan er gagnrýnin á hvort tveggja ráðherraskipan nýrrar ríkisstjórnar og samstarfssáttmála hennar. Báknið heldur áfram að vaxa, segir einn, stjórn án pólitísks erindis, segir annar - og ráðuneytaskipting sem virðist hafa fæðst á töflufundi hjá ráðgjafarfyrirtæki, segir sá þriðji. Andrés heldur áfram: „Flokkurinn gefur eftir heilbrigðismálin og umhverfismálin, sem voru stóru mál síðasta kjörtímabils og umhverfismál verða stóra mál þessa kjörtímabils. Þannig að ég veit ekki hvaða umhverfissinni getur verið ánægður með Guðlaug Þór sem fulltrúa þeirra atkvæða í umhverfisráðuneytinu,“ segir Andrés. Kristrún Frostadóttir þingmaður Samfylkingar skrifar á Twitter að ráðuneyti ríkisstjórnarinnar virðist hafa fæðst á töflufundi hjá ráðgjafafyrirtæki. Ríkisstjórnin er eins og áhorfandi í þessu öllu saman. Eins og þau hafi fengið utanaðkomandi ráðgjafa til að hjálpa þeim með framsetningu á vandanum en það kemur lítið efnislega um aðgerðir frá þeim sjálfum. “Corporate culture” þessarar ríkisstjórnar náði hámarki í dag. Þessi ráðuneyti hafa fæðst á töflufundi hjá ráðgjafafyrirtæki. Pólitíkin er fokin fyrir “lean” nálgun í rekstri samfélags. #þverpólitísksýn— Kristrún Frostadóttir (@KristrunFrosta) November 28, 2021 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kallar stjórnina „woke“ kerfisstjórn í Morgunblaðinu í dag. „Woke“ er það yfirleitt kallað að vera sérstaklega vakandi fyrir nýjustu hræringum ímyndarstjórnmálanna. Bergþór Ólason hinn þingmaður Miðflokksins fer ekki mikið fagrari orðum um stjórnarsáttmálann. „Fyrst er það að segja að manni sýnist á öllu að það sem í daglegu tali er kallað báknið muni áfram vaxa í tíð þessarar nýju ríkisstjórnar sem og á síðasta kjörtímabili. Það virðist hafa verið sett töluverð vinna í að tryggja að hægt væri að púsla sætunum saman við kosningaúrslitin í staðinn fyrir að ríkisstjórnin væri mynduð um þau málefni sem á að hafa fókus á. Það verður auðvitað ekki tekið nema úr vösum skattgreiðenda,“ segir Bergþór.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Alþingi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira