Kokkur Pútíns játar að eiga Wagner Samúel Karl Ólason skrifar 26. september 2022 10:24 Tiltölulega fáar myndir eru til af Yevgeny Prigozhin hjá vestrænum myndaveitum. Þessi var tekin árið 2016 í Pétursborg í Rússlandi. Getty/Mikhail Svetlov Rússneski auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin hefur viðurkennt að hafa stofnað og eiga málaliðahópinn Wagner Group. Hann segist hafa stofnað hópinn eftir innrás Rússa í Úkraínu 2014 og með því markmiði að senda málaliða til austurhluta Úkraínu.
Wagner er nokkuð umsvifamikill málaliðahópur og með viðveru í Mið-Austurlöndum, Afríku, Úkraínu og víðar. Málaliðar hópsins hafa margsinnis verið sakaðir um ýmis ódæði en Wagner Group hefur verið kallaður „skuggaher Rússlands“. Prigozhin hefur lengi verið talinn fjármagna málaliðahópinn. Hann tengist Vladimír Pútín, forseta Rússlands, nánum böndum og hefur um árabil verið kallaður „kokkur Pútíns“. Það vakti mikla athygli fyrr í mánuðinum þegar birt var myndband af Prigozhin í fangelsi í Rússlandi. Þar bauð hann föngum frelsi fyrir að vinna hjá Wagner í sex mánuði og taka þátt í yfirstandandi innrás í Úkraínu. „Ef þið þjónið í sex mánuði, eru þið frjálsir. Ef þið farið til Úkraínu og ákveðið að þetta sé ekki fyrir ykkur, tökum við ykkur að lífi,“ sagði Prigozhin við fangana. Hann gaf þeim fimm mínútur til að ákveða sig. Prigozhin er kallaður „kokkur Pútíns“ vegna umfangsmikilla samninga sem hann hefur gert við rússneska ríkið. Hann framleiðir meðal annars mat fyrir skólabörn og hermenn í Rússlandi. Á tíunda áratug síðustu aldar opnaði hann veitingastaði í Pétursborg. Þar á meðal veitingastaðinn New Island Restaurant. Pútín hefur snætt þar með erlendum erindrekum og stjórnmálamönnum eins og Jacques Chirac, fyrrverandi forseta Frakklands, og George W. Bush, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Hefur barist gegn því að vera bendlaður við Wagner Prigozhin hefur á undanförnum árum höfðað fjölda dómsmála gegn fólki sem hefur bendlað hann við hópinn. Hann hefur lengi verið talinn einn af stofnendum hans og sagður fjármagna hópinn. Hann er einnig sagður fjármagna rekstur Internet Research Agency sem er gjarnan þekkt sem tröllaverksmiðja Rússlands. Þá er hann eftirlýstur í Bandaríkjunum vegna afskipta IRA af forsetakosningunum 2016. Sjá einnig: Upplýsingahernaður háður úr „Tröllaverksmiðju“ í Pétursborg Nú hefur auðjöfurinn viðurkennt að hafa stofnað málaliðahópinn. Í yfirlýsingu frá Concord Group, sem er fyrirtæki í eigu Prigozhins, segist hann hafa stofnað hópinn árið 2014, Nú sé hann skipaður föðurlandsvinum sem berjist til að vernda þá sem minna mega sín og í nafni réttlætis. Prigozhin segir málaliða sína vera eina af grunnstoðum „Móðurlandsins“. Hann segist stoltur af störfum þeirra. Evrópusambandið beitti Wagner Group og menn sem að málaliðahópnum koma refsiaðgerðum í fyrra. Sambandið sagði málaliða Wagner hafa brotið gegn mannréttindum fólks og framið ýmis brot eins og pyntingar, aftökur og ógnanir gegn óbreyttum borgurum. Sjá einnig: Hermenn og rússneskir málaliðar tóku hundruð af lífi í Malí Í yfirlýsingu ESB sagði að Wagner Group væri fjármagnaður af Prigozhin. Þá staðhæfði hann að hann tengdist málaliðahópnum ekki á nokkurn hátt. Meðal þeirra sem beittir voru refsiaðgerðum var Dimitrí Utkin, fyrrverandi útsendari GRU, leyniþjónustu rússneska hersins, og er skreyttur nasista-húðflúrum. Þá er málaliðahópurinn sagður vera kallaður Wagner Group vegna þess að Richard Wagner hafi verið eitt af uppáhalds tónskáldum Adolfs Hitler. Utkin er meðal annars sakaður um að hafa fyrirskipað pyntingu og morð á sýrlenskum liðhlaupa.
Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Hernaður Sýrland Malí Líbía Súdan Mósambík Mið-Afríkulýðveldið Tengdar fréttir Hleruðu rússneska hermenn ræða morð á íbúum Bucha Leyniþjónusta Þýskalands (BND) hleraði samskipti milli rússneskra hermanna þar sem þeir meðal annars ræddu það að skjóta almenna borgara. Talið er mögulegt að umræðurnar tengist morðum á íbúum Bucha, norður af Kænugarði. 7. apríl 2022 23:40 Lögðu hald á íbúð Navalní og frystu reikninga hans Yfirvöld í Rússlandi hafa fryst bankareikninga rússneska stjórnarandstæðingsins Alexeis Navalnís og lagt hald á íbúð hans. 24. september 2020 23:43 Varpa frekara ljósi á starfsemi „Tröllaverksmiðju“ Rússa Þingmenn bæði Repúblikanaflokksins og Demókrataflokksins kalla eftir því að þingið, Hvíta húsið og tæknifyrirtæki Bandaríkjanna komi í veg fyrir að samfélagsmiðlar verði notaðir til að hafa áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum á næsta ári. 8. október 2019 22:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Innlent Hraun mjakast yfir varnargarð Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Helga lenti einnig í vandræðum Innlent Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Eiríkur og Ástþór fá frest til að bæta við undirskriftum Innlent Fleiri fréttir Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Sjá meira
Hleruðu rússneska hermenn ræða morð á íbúum Bucha Leyniþjónusta Þýskalands (BND) hleraði samskipti milli rússneskra hermanna þar sem þeir meðal annars ræddu það að skjóta almenna borgara. Talið er mögulegt að umræðurnar tengist morðum á íbúum Bucha, norður af Kænugarði. 7. apríl 2022 23:40
Lögðu hald á íbúð Navalní og frystu reikninga hans Yfirvöld í Rússlandi hafa fryst bankareikninga rússneska stjórnarandstæðingsins Alexeis Navalnís og lagt hald á íbúð hans. 24. september 2020 23:43
Varpa frekara ljósi á starfsemi „Tröllaverksmiðju“ Rússa Þingmenn bæði Repúblikanaflokksins og Demókrataflokksins kalla eftir því að þingið, Hvíta húsið og tæknifyrirtæki Bandaríkjanna komi í veg fyrir að samfélagsmiðlar verði notaðir til að hafa áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum á næsta ári. 8. október 2019 22:00