Sport

Dag­skráin í dag: Bar­áttan um Róm, Manchester United, NBA og margt fleira

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Marcus Rashford verður að öllum líkindum í byrjunarliði Manchester United í dag.
Marcus Rashford verður að öllum líkindum í byrjunarliði Manchester United í dag. James Gill/Getty Images

Það má með sanni segja að dagskrá Stöðvar 2 Sport í dag sé allskonar. Fjölbreytt og öll ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Stöð 2 Sport

Klukkan 18.05 hefst útsending frá Ólafssal þar sem Haukar mæta Fjölni í Subway-deild kvenna í körfubolta.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 11.50 hefst útsending frá Stálborginni Sheffield þar sem heimamenn í Sheffield United mæta Blackburn Rovers í 8-liða úrslitum enska FA-bikarsins. Bæði lið hafa átt góðu gengi að fagna í B-deildinni þar í landi og reikna má með hörku leik.

Klukkan 14.05 færum við okkur til Brighton þar sem Brighton & Hove Albion mæta Grimsby Town. Ljóst er að gestirnir þurfa kraftaverk til að fara áfram en FA-bikarinn er þekktur fyrir slíkt.

Klukkan 16.10 hefst upphitun fyrir leik Manchester United og Fulham í sömu keppni. Leikurinn hefst svo 16.30. Klukkan 18.30 verða leikir dagsins í FA-bikarnum gerðir upp.

Klukkan 19.35 er stórleikur Inter og Juventus í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, á dagskrá.

Stöð 2 Sport 3

Klukkan 11.20 hefst útsending frá leik Sampdoria og Hellas Verona í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Þar á eftir er leikur Torino og toppliðs Napoli í sömu deild.

Klukkan 16.50 hefst útsending frá Róm þar sem erkifjendurnir Lazio og Roma mætast. Má reikna með hatrömmum leik.

Klukkan 19.30 er leikur Brooklyn Nets og Denver Nuggets í NBA-deildinni í körfubolta á dagskrá.

Stöð 2 Sport 4

Klukkan 17.20 er leikur Real Madríd og Baskonia í ACB-deildinni á Spáni á dagskrá.

Stöð 2 ESport

Klukkan 11.00 eru undanúrslit í BLAST Premier á dagskrá. Síðari undanúrslita leikurinn er á dagskrá klukkan 14.00. Klukkan 21.00 er svo Sandkassinn á dagskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×