Vilja rússneska hermenn frá landamærum Úkraínu Samúel Karl Ólason skrifar 1. desember 2021 21:46 Frá heræfingu í Rússlandi í september. AP/Varnarmálaráðuneyti Rússlands Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvatti ráðamenn í Rússlandi til að flytja hermenn sína á brott frá landamærum Úkraínu. Hann sagði að innrás í Úkraínu myndi hafa afleiðingar og meðal annars yrðu hinum ströngustu refsiaðgerðum beitt gegn Rússlandi.
Blinken sagði á blaðamannafundi í dag að ekki væri vitað hvort Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefði tekið ákvörðun um að ráðast inn í Úkraínu. Hann hefði hins vegar stillt nægilega mörgum hermönnum við landamærin svo hann gæti gert það með skömmum fyrirvara. Ráðherrann ítrekaði, þar sem hann var á fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins í Riga í Lettlandi, að Bandaríkin myndu bregðast harkalega við innrás í Úkraínu. Hér má sjá hluta ræðu Blinkens frá því í dag. Yfirvöld í Kænugarði segja Rússa hafa flutt rúmlega níutíu þúsund hermenn að landamærum sínum. Rússland innlimaði Krímskaga af Úkraínu árið 2014 og hafa ráðamenn þar stutt við bakið á aðskilnaðarsinnum í austurhluta landsins. Meðal annars með vopnum og hermönnum. Rússar segjast óttast innrás Úkraínu í Úkraínu Samkvæmt frétt Reuters segja ráðamenn í Rússlandi að þeir óttist að Úkraína ætli að gera innrás í austurhluta Úkraínu og reka aðskilnaðarsinna á brott. Þess vegna séu þeir með sína hermenn við landamærin. Rússar hafa haldið umfangsmiklar heræfingar við landamæri Úkraínu og hafa hermenn frá Hvíta-Rússlandi einnig tekið þátt í æfingunum. Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu.AP/Efrem Lukatsky Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði á þingi þar í landi í dag að viðræður við Rússa þyrfti til að binda enda á átökin í Austurhluta landsins, þar sem um fjórtán þúsund manns hafa fallið á undanförnum árum. Hann sagði að án viðræðna væri ekki hægt að stilla til friðar. Dmitrí Peskóv, talsmaður Pútíns, sagði þó að átökin í austurhluta Úkraínu vera innanríkismál Úkraínu. Það kæmi Rússlandi ekki við. Sagði hann að viðræðurnar þyrftu að vera milli Kænugarðs og aðskilnaðarsinnanna. Vill lögbundna skuldbindingu frá NATÓ Ríkisstjórn Pútíns hefur lengi verið andsnúin auknum samskiptum Úkraínu við Evrópu og núverandi ætlanir ráðamanna þar um að ganga í bæði Evrópusambandið og Atlantshafsbandalagið hafa ekki fallið í kramið í Moskvu. Í gær sagði Pútín að frá sínum bæjardyrum séð kæmi ekki til greina að hermenn Atlantshafsbandalagsins kæmu sér fyrir í Úkraínu. Vladimír Pútín, forseti Rússlands.AP/Mikhail Metzel Pútín sagði svo í dag að hann vildi viðræður við NATÓ um að varnarsamstarfið myndi ekki teygja anga sína lengra til austurs og að vopnum yrði ekki komið fyrir nærri Rússlandi. Samkvæmt AP fréttaveitunni sagðist Pútín ekki vilja munnlegt samkomulag, heldur lagalega skuldbindingu frá NATÓ. Blinken virtist þó ekki sammála forsetanum rússneska. „Það að Úkraína ógni Rússlandi væri brandari ef ástandið væri ekki svona alvarlegt,“ sagði Blinken. „NATÓ er varnarbandalag. Við erum ekki ógn gagnvart Rússlandi.“
Úkraína Rússland Bandaríkin NATO Hernaður Lettland Tengdar fréttir Sagði rússneska menn hafa ætlað að fremja valdarán í Úkraínu Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að komist hafi upp um tilraun til valdaráns þar í landi. Til hafi staðið að fella ríkisstjórn hans í næstu viku og að aðilar frá Rússlandi hafi náðst á upptöku reyna að fá ríkasta auðjöfur Úkraínu til að taka þátt í valdráninu. 26. nóvember 2021 17:00 Úkraínumenn og Rússar halda heræfingar á landamærum Spennan í Austur-Evrópu magnast enn en bæði Rússar og Úkraínumenn hafa verið að halda heræfingar á landamærum sínum. Staðan á landamærum Póllands og Hvíta-Rússlans fer þá versnandi. 24. nóvember 2021 11:59 Rússar hefna fyrir refsiaðgerðir NATO-ríkja Skrifstofum Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Moskvu verður lokað og sendinefnd Rússlands gagnvart bandalaginu verður kölluð heim með aðgerðum sem stjórnvöld í Kreml tilkynntu um í dag. Aðgerðirnar eru svar við brottvísun rússneskra sendifulltrúa hjá NATO. 18. október 2021 15:46 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Fleiri fréttir Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Sjá meira
Sagði rússneska menn hafa ætlað að fremja valdarán í Úkraínu Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að komist hafi upp um tilraun til valdaráns þar í landi. Til hafi staðið að fella ríkisstjórn hans í næstu viku og að aðilar frá Rússlandi hafi náðst á upptöku reyna að fá ríkasta auðjöfur Úkraínu til að taka þátt í valdráninu. 26. nóvember 2021 17:00
Úkraínumenn og Rússar halda heræfingar á landamærum Spennan í Austur-Evrópu magnast enn en bæði Rússar og Úkraínumenn hafa verið að halda heræfingar á landamærum sínum. Staðan á landamærum Póllands og Hvíta-Rússlans fer þá versnandi. 24. nóvember 2021 11:59
Rússar hefna fyrir refsiaðgerðir NATO-ríkja Skrifstofum Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Moskvu verður lokað og sendinefnd Rússlands gagnvart bandalaginu verður kölluð heim með aðgerðum sem stjórnvöld í Kreml tilkynntu um í dag. Aðgerðirnar eru svar við brottvísun rússneskra sendifulltrúa hjá NATO. 18. október 2021 15:46