Hraun Skaftárelda skóp nýja sveit eftir Móðuharðindin Kristján Már Unnarsson skrifar 29. nóvember 2020 22:12 Hraunból, eins og aðrir bæir á Brunasandi, reis við lindir og læki sem spruttu undan nýja hrauninu. Búið var í gamla bænum til ársins 2004. Nýja íbúðarhúsið fjær við hraunjaðarinn. Þar fyrir ofan sést Orustuhóll. Einar Árnason Skaftáreldum og Móðuharðindunum sem þeim fylgdu hefur verið lýst sem mestu hörmungum Íslandssögunnar. Talið er að fimmtungur þjóðarinnar hafi látist og 75 prósent af bústofni landsmanna fallið af völdum eldgossins í Lakagígum árin 1783-1784.
Minna hefur verið fjallað um nýja sveit sem varð til vegna eldgossins, Brunasand. Hún er heimsótt í þættinum Um land allt á Stöð 2. Þessi yngsta sveit Íslands varð til eftir að hraunrennslið skóp búsetuskilyrði á svæði sem áður var óbyggilegur jökulsandur. Helgi Björnsson og Þóra Ellen Þórhallsdóttir eiga jörðina Hruna á Brunasandi. Þau eru meðal höfunda bókar um Brunasand, sem út kom fyrir fimm árum.Einar Árnason Tveir landsþekktir náttúruvísindamenn, hjónin Helgi Björnsson jöklafræðingur og Þóra Ellen Þórhallsdóttur grasafræðingur, fræða um einstaka myndunarsögu byggðar á Brunasandi. Þau segja jafnframt frá lífinu á jörðinni Hruna, sem þau eignuðust þegar hefðbundum búskap lauk þar. Hún var með þeim fyrstu sem byggðust á Brunasandi eftir að Skaftáreldum lauk. Þuríður Benediktsdóttir, atvinnumálafulltrúi Skaftárhrepps, býr á Hraunbóli.Einar Árnason Á jörðinni Hraunbóli rifjar Þuríður Benediktsdóttir upp mannlífið á Brunasandi þegar hún var þar ung stúlka í sveit hjá ömmu sinni og afa. Hún og eiginmaður hennar, Birgir Teitsson arkitekt, segja frá nýju íbúðarhúsi sem þau hafa reist í hraunjaðrinum. Hreiðar Hermannsson sýnir okkur jörðina Orustustaði og segir frá sex milljarða króna framkvæmdum við hótel, sem hann boðar að verði stærsti vinnustaður Skaftárhrepps. Hreiðar Hermannsson lýsir útsýninu frá Orustustöðum þar sem hann reisir hótel. Til austurs horfir hann á Lómagnúp, Skeiðarárjökul og Öræfajökul og til vesturs á Mýrdalsjökul.Einar Árnason Pólsk hjón, Anna Magdalena Buda og Wojciech Jaroslaw Buda, segja frá bleikjueldinu sem þau annast á Teygingalæk. Það byggir á vatninu sem rennur undan Brunahrauni. Bærinn Slétta er sá eini sem eftir er á Brunasandi með hefðbundnum búskap. Þar hittum við systkinin Páll Elíasson og Elínu Elíasdóttur og son hennar, Elías Ásgeirsson. Júlíana Þóra Magnúsdóttir þjóðfræðingur segir frá sögnum og munnmælum af Brunasandi og hvaða orustur eru sagðar skýra nafn Orustuhóls. Þátturinn er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld, mánudagskvöld, klukkan 19:10. Hér má sjá kynningarstiklu þáttarins:
Um land allt Skaftárhreppur Eldgos og jarðhræringar Ferðamennska á Íslandi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hálfri milljón yrði gert að rýma kæmi til goss Erlent Segir hin sigurstranglegu hafa tromp á hendi Innlent Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Innlent Tækifærum fækkar til að sjá svona flugvélar fljúga Innlent Sagðist opinn fyrir takmörkunum á getnaðarvarnir Erlent Kanna hvar Perry fékk ketamínið Erlent Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru Innlent „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Íslendingur á meðal farþega í flugvélinni Erlent Fleiri fréttir Tækifærum fækkar til að sjá svona flugvélar fljúga Segir hin sigurstranglegu hafa tromp á hendi Pétur Jökull ákærður í stóra kókaínmálinu Nýir prestar og nýir djáknar mættir til starfa Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Kjósendur eiga miserfitt með að ákveða sig Deginum ljósara að það verði ekki veitt í sumar Spenna við Svartsengi, hvalveiðar í uppnámi og flugvélar í beinni Utanríkisráðuneytið harmar skort á kjörseðlum Bjarni í heimsókn í Malaví Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru „Ömurleg staða að vera settur í“ Þróttur lætur þríhyrninginn ekki af hendi „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Herþristar á níræðisaldri til sýnis á Reykjavíkurflugvelli Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Samningar loks í höfn eftir fjögurra ára samningsleysi „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Um sautján milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikuhólfið Hafa enga trú á að hvalveiðar fari fram í sumar Breytingar í borholum og fylgi frambjóðenda enn á hreyfingu Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Erfiðast að fá Baldur til að tala um sjálfan sig Nýjar reglur um sjálfbæra landnýtingu Skúli metinn hæfastur í Hæstarétt Breytingar í borholum á Reykjanesi „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Lögreglan lýsti eftir fimmtán ára gamalli stúlku Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Sjá meira