Íslendingar alltaf duglegir að fá sér húðflúr Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 25. janúar 2022 20:10 Karítas Gunnarsdótttir, 28 ára Selfyssingur, sem er flúrari á stofu út á Granda í Reykjavík. Hún rétt tók grímuna niður á meðan myndin var tekin, enda vel hugað að öllum sótvörnum á stofnunni. Magnús Hlynur Hreiðarsson Ekkert lát er á vinsældum þess að fólk fái sér húðflúr á líkamann og þá eru konur að koma mjög sterkt inn, sem húðflúrarar.
Það má víða finna tattú stofur úti á landi og í höfuðborginni. Ein þeirra er úti á Granda í Reykjavík þar sem nokkrir húðflúrarar starfa. Karítas Gunnarsdóttir, 28 ára Selfyssingur er ein þeirra. Hún segist vera nýgræðingur í faginu enda ekki búin að húðflúra nema frá því í apríl á síðasta ári, en samt er brjálað að gera hjá henni. Teikningar hafa verið hennar aðalsmerki enda mjög fær á því sviði en svo heillaðist hún af vinnunni við að húðflúra. „Ég er náttúrulega enn þá að læra og alltaf að vonast til að gera betur. Fyrst og fremst finnst mér bara frábært að geta verið listamaður, að vera bara að teikna. Það er grunnurinn í þessu, það skiptir mestu máli, ég hef alltaf verið teiknandi,“ segir Karítas. Kartías hefur alltaf verið teiknandi og er enn að teikna á fullu.Magnús Hlynur Hreiðarsson Karítas segir frábært að geta unnið við áhugamálið sitt, fyrst að teikna mynd á blað og sjá svo um að koma myndinni á líkama fólks með húðflúri. Hún hefur sérstaklega gaman að dýra og mannlífsmyndum. En hvernig lýsir hún sínum stíl? „Teiknimyndalegur, krúttlegur og litríkur,“ segir hún hlægjandi. Uglutattú,sem Karítas gerði nýlega.Aðsend Karítas segir vinsældir húðflúra alltaf að vera að aukast og aukast og það séu jafnt karlar og konur úr öllum stéttum þjóðfélagsins að fá sér tattú hér og þar um líkamann. Hvort það megi þakka það Covid eða einhverju öðru, segist hún ekki hafa hugmynd um. Þá fari þeim konum mjög fjölgandi, sem eru að flúra. „Karítas er rosalega góður listamaður, það fer ekki á milli mála. Ég er búin að þekkja hana í listaheiminum, bæði á Íslandi og erlendis núna í tvö til þrjú ár og þetta er þriðja tattúið, sem ég fæ hjá henni og hún stendur sig bara mjög vel,“ segir Dísa Thorsdóttir, ánægður viðskiptavinur Karítasar. En hvernig tilfinning er það að merkja fólk svona til eilífðar? „Það var alveg pínu stressandi hugsun til að byrja með en ég komst yfir það því fólk er alltaf svo ánægt þegar maður er búin,“ segir Karítas. En hvaðan koma þessir hæfileikar, er það Selfoss eða? „Já, auðvitað, er það ekki,“ segir hún og skellihlær. Á þessari síðu er hægt að sjá hvað Karítas er helst að gera
Reykjavík Húðflúr Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Erlent Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Innlent „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Fleiri fréttir Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Vinstri græn aldrei með minna fylgi Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Sjá meira