Hópuðust saman við heimili samnemanda og ætluðu að taka lögin í sínar hendur Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 21. nóvember 2021 19:07 Lögregla var kölluð að heimilinu klukkan um 20 mínútur í tíu í gærkvöldi. vísir/tumi Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út að heimili í Garðabæ í gærkvöldi en stór hópur krakka hafði safnast saman fyrir utan það og haft í hótunum við heimilisfólkið. Aðstoðaryfirlögregluþjónn gerir ráð fyrir að heimilisfólkið leggi inn kærur á morgun og að málið verði í framhaldi unnið í samstarfi við barnaverndaryfirvöld, enda séu krakkarnir ósakhæfir. „
Þetta mál varðar hótanir frá ólögráða einstaklingum sem eru þarna að veitast að fólkinu sem býr í húsinu út af einhverju myndskeiði á TikTok sem er síðan sagður vera tilbúningur,“ segir Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn í samtali við Vísi. Krakkarnir eru á unglingastigi og voru komnir ansi margir saman fyrir utan heimili fólksins í gær, jafnvel einhverjir tugir krakka. Ásakanir á samfélagsmiðlum Umrætt myndband tengist 13 ára samnemanda krakkanna en hann er þar sakaður um alvarlegt athæfi. Skólastjórinn sendi foreldrum póst í dag þar sem málið var rætt og foreldrar eindregið hvattir til að ræða við börn sín um alvarleika þess að taka þátt í árásum, ofbeldi og hótunum á hendur öðru barni. Í pósti skólastjórans er málið rakið og talað um að nemandinn hafi verið sakaður um alvarlegt athæfi á samfélagsmiðlum. Ásakanirnar hafi síðan undið upp á sig alla vikuna. Í kjölfarið hafi skemmdarverk verið unnin á skáp nemandans og námsgögnum og loks á heimili hans. Myndir hafi verið birtar af heimilinu á samfélagsmiðlum ásamt nöfnum og símanúmerum hans og foreldra hans. Í gærkvöldi hafi síðan nokkrir tugir krakka safnast saman fyrir utan heimilið og símhringingum og skilaboðum tók að rigna inn til heimilismanna þar sem nemandanum var meðal annars hótað lífláti og hvattur til að drepa sig. Svona virkar réttarkerfið ekki „Það var mikið áreiti þarna í gær og símarnir hjá fólkinu hringdu allir látlaust,“ segir Skúli. Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.vísir/vilhelm Málið sé viðkvæmt enda um ólögráða einstaklinga að ræða þar. Sakhæfisaldur á Íslandi er þó 15 ára og þeir sem brjóta af sér á þeim aldri lúti sömu lögmálum og fullorðnir þegar kemur að kærum og lögreglurannsókn. Þegar um yngri einstaklinga sé að ræða verði að vinna slík mál í nánu samstarfi við barnaverndaryfirvöld. „Við gerum ráð fyrir því að íbúarnir þarna komi til okkar í fyrramálið og leggi fram kærur vegna málsins. Síðan, eins og gefur að skilja, þegar við erum að tala um svona ósakhæfa grunnskólakrakka þá er þetta orðið flókið og við verðum að vinna það með barnaverndaryfirvöldum,“ segir Skúli. Honum sýnist sem þarna hafi einhver umræða á samfélagsmiðlum farið gjörsamlega úr böndunum hjá krökkunum. „Svo virðist sem þarna ætli þau að fara að taka málin í sínar hendur og afgreiða eitthvað vegna einhverra ásakana sem hafa farið af stað. En svoleiðis virkar okkar réttarkerfi bara alls ekki og mikilvægt að þau skilji það.“
Lögreglumál Garðabær Grunnskólar Samfélagsmiðlar Ofbeldi gegn börnum Stafrænt ofbeldi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Innlent Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Innlent Fleiri fréttir Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Sjá meira