Samfélagsmiðillinn Facebook segist ætla að greiða nokkrum frönskum fjölmiðlafyrirtækjum fyrir að deila fréttum þeirra. Deilur um slíkt hafa staðið yfir í nokkur ár og gaf samfélagsmiðillinn það út árið 2019 að hann myndi ekki greiða fjölmiðlafyrirtækjum fyrir deilingar.
Sama ár tóku lög gildi í Frakklandi sem miða að því að tryggja að fréttamiðlar fái greiðslur þegar aðrar síður deila efni þeirra áfram.
Tæknirisinn Google mótmælti lögunum, rétt eins og Facebook.
Þá sektuðu samkeppnisyfirvöld í Frakklandi Google um það sem nam rúmum 73 milljörðum króna í byrjun árs fyrir að ganga ekki hreint til verks í samningaviðræður við franska fjölmiðla. Tæknirisinn hefur samið við nokkra franska fjölmiðla um greiðslur.
Facebook hefur nú samið við nokkra franska fjölmiðla um að greiða fyrir fréttir sem birtast á fréttaveitu fólks á Facebook.