„Getur engin farið á klúbbinn á laugardagskvöldi en við skemmtum okkur á vellinum í staðinn“ Arnar Geir Halldórsson skrifar 16. janúar 2021 22:45 Hart barist undir körfunni í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Hildur Björg Kjartansdóttir átti ágætan leik í kvöld fyrir Val gegn Haukum en hún setti niður ellefu stig og tók þar að auki sex fráköst í tíu stiga sigri á Ásvöllum.
Hildur Björg Kjartansdóttir átti ágætan leik í kvöld gegn Haukum en hún setti niður 11 stig og tók þar að auki 6 fráköst í 10 stiga sigri á Ásvöllum. „Ég er mjög glöð að vinna hérna, gegn sterku liði. Þetta byrjaði svolítið flatt hjá okkur í dag og það vantaði smá gleði. Það sagði einhver inn í klefa að nú væri laugardagskvöld og það getur enginn farið á klúbbinn en við getum verið hér að spila þannig að við verðum að hafa aðeins meira gaman af þessu,“ sagði Hildur í viðtali eftir leik. Valur var með yfirhöndina framan af og leiddi leikinn allan fyrri hálfleikinn en þær hleyptu Haukum inn í leikinn í síðari hálfleik og Haukarnir náðu að komast yfir í fjórða leikhluta. Aðspurð um breytinguna á Valsliðinu frá fyrri og seinni hálfleik svaraði Hildur, „Við leyfðum þeim að fara í taugarnar á okkur, þær voru að ýta vel í okkur og við að leyfa þeim að ýta okkur úr stöðunum. Við þurfum bara að hugsa um okkur og spila okkar leik og halda áfram.“ Það hefur verið rætt og ritað um að hléið sem gert var á deildinni vegna heimsfaraldursins hafi hjálpað Valsliðinu vel í því að endurheimta leikmenn sína úr meiðslum og fleira. Hildur er nokkuð sammála því. „Þetta hentaði allavegana ágætlega fyrir mig og Helenu og Ásta er kominn aftur. Ég fékk að jafna mig í friði með brotinn putta og Helena eignaðist sitt barn. Þetta hentaði þannig alveg ágætlega þó það verði mikið álag núna. Við erum samt fyrst og fremst ánægðar að vera byrjaðar aftur,“ svaraði Hildur. Valsliðið er búið að sigra báða leiki sína eftir hlé og næstu fórnarlömb eru Snæfellingar sem koma í heimsókn á Hlíðarenda á miðvikudag og Hildur segir Valsliðið halda ótrautt áfram „Við stefnum alltaf á sigur. Við fögnum í kvöld og erum glaðar að hafa unnið hér en á morgun undirbúum við næsta leik,“ sagði Hildur að lokum.
Dominos-deild kvenna Valur Mest lesið Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Körfubolti Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Körfubolti Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Fótbolti Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Fótbolti Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Enski boltinn Fleiri fréttir Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, myndir og viðtöl: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Oddaleikur í opinni dagskrá: Grindvíkingar taka á móti Keflvíkingum Sjá meira
Uppgjör, myndir og viðtöl: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn
Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik