Bjarni: Við vorum bara ekki þátttakendur í þessum leik Siggeir Ævarsson skrifar 22. mars 2023 22:40 Bjarni Magnússon var ósáttur með sitt lið í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Bjarni Magnússon, þjálfari Hauka, var ekki upplitsdjarfur eftir þungt tap hans kvenna í Njarðvík í kvöld í Subway-deildinni, lokatölur 84-68. „
Við vorum bara ekki mikið þátttakendur í þessum leik, en áfram gakk!“ Leikurinn var nokkuð jafn í byrjun, staðan 18-17 eftir fyrsta leikhluta. Njarðvíkingar náðu svo að setja ansi mörg stig í röð undir lok annars leikhluta og þá leit hreinlega út fyrir að Haukar væru búnir að gefa upp alla von um sigur. Bjarni var ekki sammála því mati blaðamanns, en sagði að endurtekið efni í þriðja leikhluta hefði endanlega kostað þær sigurinn. „Ég er nú svo sem ekki sammála því. En við vorum rosalega mikið á hælunum og andleysi í okkur. Við töluðum um það fyrir leik að við ætluðum að leggja okkur fram en ég hafði samt áhyggjur af því að við myndum mæta flatar til leiks. Það er stutt í úrslitakeppnina og auðvitað erum við að keppa að öðru sætinu en það er ekkert himinn og haf þarna á milli, og sú varð raunin.“ „Þriðji leikhluti var bara „copy/paste“ af öðrum leikhluta.“ „En við töluðum um það í hálfleik að reyna aðeins að spýta í lófana, sýna aðeins meiri grimmd í því sem við vorum að gera og ákefð, og vera árásargjarnari á báðum endum. En þriðji leikhluti var bara „copy/paste“ af öðrum leikhluta.“ Hópurinn hjá Haukum er í þynnra lagi þessa dagana og margir lykilmenn frá vegna meiðsla. Það hlýtur að vera ákveðið áhyggjuefni, þegar úrslitakeppnin er handan við hornið? „Auðvitað vill maður hafa alla heila, klárlega. En ég hef líka sagt það áður að maður getur ekkert verið að dvelja við það. Þetta er hópurinn og við erum með góða leikmenn sem eru að spila en þær náðu bara ekki að sýna sitt rétta andlit í dag. Svo er bara annar leikur í næstu viku, hvort sem það verður sami hópur eða það komi einhverjar fleiri, það kemur bara í ljós. En við getum ekki verið að dvelja við það. Við getum bara klárlega, þótt okkur vanti einhverja leikmenn, sýnt betri leik en við gerðum í dag.“ Keira Robinson spilaði nánast allan leikinn í kvöld, 38 og hálfa mínútu. Hún skilaði vissulega drjúgu framlagi en Bjarni getur væntanlega ekki stólað á að spila henni svona mikið leik eftir leik? „Nei og ég ætlaði ekkert að spila henni alveg svona mikið í kvöld. En því miður þá voru ekkert margir aðrir leikmenn í dag sem voru á sínum leik. Ef ekki hefði verið fyrir 35 stigin frá Keiru þá hefði þetta farið náttúrulega bara miklu miklu verr. Ég saknaði framlags frá öllum hinum í byrjunarliðinu og plús það.“
Subway-deild kvenna Haukar UMF Njarðvík Mest lesið „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ Íslenski boltinn „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Körfubolti DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld Körfubolti „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Körfubolti Lið Aþenu og Brynjar Karl einum leik frá Subway-deildinni eftir spennutrylli Körfubolti Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma Handbolti Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Íslenski boltinn Aron Einar og Arnór minnast systur sinnar sem lést langt fyrir aldur fram Sport Fleiri fréttir „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Kyrie kann að loka einvígum og Dallas sló loksins út Clippers DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Lið Aþenu og Brynjar Karl einum leik frá Subway-deildinni eftir spennutrylli „Þurfum að fá fleiri hjól undir bílinn“ „Það er búið að vera okkar merki í allan vetur að spila vörn“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 69-78 | Deildarmeistararnir læstu vörninni Báðir þjálfarar Skallagrímsliðsins hætta Kastaði bolta í áhorfanda eftir tap Geta unnið fjóra í röð í fyrsta sinn í heilan áratug Jaka áfram í Keflavík næstu þrjú árin „Of mörg tilfelli sem hafa komið upp“ Knicks og Pacers hefja nýtt einvígi á mánudag Eigendur 76ers gefa miða svo Knicks aðdáendur taki ekki aftur yfir „Vörnin í dag, það er það sem vann þetta“ „Virkilega léleg frammistaða heilt á litið“ Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 66-58 | Njarðvíkingar einum sigri frá úrslitum Emil tekur við Haukum af Ingvari Sló í myndavél og gæti fengið bann Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Veikur og meiddur Doncic fór á kostum og Boston flaug áfram Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers PlayAir leiksins var Dedrick Deon Basile Ein af stóru Sólunum gæti fært sig yfir í Stóra eplið Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið „Ansi erfitt fyrir Grindvíkinga að hann hagi sér svona og fái mögulega leikbann“ Magnaður Maxey bjargaði Sixers frá sumarfríi Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ LeBron gæti fengið sig lausan frá Lakers og verið án félags í sumar Sjá meira