Hinsegin fólk óttast um hag sinn undir róttækri hægristjórn Kjartan Kjartansson skrifar 27. september 2022 14:01 Frá gleðigöngu hinsegin fólks í Róm í sumar. Gleði sumra er tekin að kárna eftir að hægrijaðarflokkar unnu sigur í þingkosningum um helgina. Vísir/EPA Orðræða og stefnuskrár tveggja róttækra hægriflokka sem unnu sigur í ítölsku þingkosningunum um helgina vekja ugg á meðal hinsegin fólks í landinu. Líklegasta forsætirsáðherraefnið hefur sagst óvinur „LGBT-þrýstihópsins“ og „kynjaðrar hugmyndafræði“.
Kosningabandalag þriggja hægri flokka unnu sigur í þingkosningunum á Ítalíu um helgina. Útlit er því fyrir að tveir hægrijaðarflokkar, Bræðralag Ítalíu og Bandalagið, myndi ríkisstjórn með hægriflokki Silvios Berlusconi, Áfram Ítalíu, undir forsæti Giorgiu Meloni, leiðtoga Bræðralagsins. Meloni hefur lýst sjálfri sér sem varðhundi kristinna gilda og andstæðingi þess að samkynhneigð pör fái að ættleiða börn. Hún hefur þó neitað því að hún muni grafa undan eða afnema réttindi eins og til þungunarrofs eða hjónabanda samkynhneigðra sem er þegar kveðið á um í ítölskum lögum. Það hefur þó ekki dugað til þess að sefa áhyggjur hinsegin fólks, ekki síst í ljósi ummæla talsmanns Bræðralagsins í menningarmálum. Federico Mollicone sagðist meðal annars telja að samkynhneigð pör væru ekki lögleg í síðustu viku. Hann sagðist síðar aðeins hafa átt við samkynhneigð pör sem ættleiða börn. Fullyrðir hann að flokkurinn styðji rétt samkynhneigðra til að ganga í hjónaband þrátt fyrir að hann hafi greitt atkvæði gegn frumvarpi um það árið 2016. Hann stendur enn við kröfu um að þáttur um teiknimyndapersónuna Gurru grís sem er vinsæl á meðal barna verði ritskoðaður vegna þess að í honum á ein persónan tvær mæður. Mollicone telur ekki rétt að sýna börnum samkynhneigða foreldra eins og það sé „náttúruleg staðreynd“. Erfiðara að vinna gegn mismunun gegn hinsegin fólki Fabrizio Marrazzo frá samtökunum Samkynhneigða flokknum segir að hinsegin samfélagið hafi raunverulegar áhyggjur af borgaralegum réttindum undir nýrri ríkisstjórn. „Bandalagið og Bræðralag Ítalíu að hluta til hafa hluti í stefnuskrám sínum sem eru frekar neikvæðir fyrir samfélag okkar, eins og að leggja áherslu á að vernda aðeins hefðbundið fjölskyldumynstur,“ segir Marazzo við Reuters-fréttastofuna. Mestar áhyggjur segist hann þó hafa af þeim skilaboðum sem hægriflokkarnir sendi út í samfélagið. Hann telur að erfiðari gæti reynst að halda úti verkefnum til að berjast gegn mismunun hinsegin fólks í skólum. Þá hafi árásum á hinsegin fólks fjölgað í borgum og héruðum þar sem hægrimenn fara með stjórn.
Ítalía Kosningar á Ítalíu Hinsegin Tengdar fréttir Talaði við rétta fólkið og sagði réttu hlutina Ítalir vildu breytingar og Giorgia Meloni varð niðurstaðan. Þetta segir ítalskur doktorsnemi sem hefur ekki þungar áhyggjur af uppgangi þjóðernispopúlisma í heimalandi sínu. 26. september 2022 21:18 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Innlent Stjórnarmaður í RÚV segir opinber hlutafélög fé án hirðis Innlent Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Innlent Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Erlent Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Erlent Katrín á toppnum um allt land Innlent Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Erlent Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Erlent Halda andlitinu í skólanum en hrynja niður heima Innlent Kíghósti hefur náð útbreiðslu á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Eiginmaður Sturgeon ákærður fyrir fjárdrátt Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Johnson í erfiðri stöðu Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Mikill mannskaði eftir sögulegt úrhelli í eyðimörkinni Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Hæsta vindmylla heims á landi reist í Danmörku Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Boðflennusæfíll hrellir Kanadamenn Mannskæð loftárás Rússa í Norður-Úkraínu Toppurinn á spírunni fundinn: „Margir í sjokki og enn að ná sér“ Kóralrif fölna á heimsvísu í fjórða skiptið á þremur áratugum Eins og hálfs árs úrkoma á einum sólarhring í Dubai Ítarleg úttekt á þjónustu við börn með kynama þungur áfellisdómur Greitt fyrir aðgengi andstæðinga þungunarrofs inn á heilbrigðismiðstöðvar Áætla að yfir 50.000 rússneskir hermenn hafi fallið í átökunum Segja stunguárásina vera hryðjuverk Trump dottaði þegar fyrsta sakamálið var tekið fyrir Svipað og að horfa upp á Notre Dame brenna Sjá meira
Talaði við rétta fólkið og sagði réttu hlutina Ítalir vildu breytingar og Giorgia Meloni varð niðurstaðan. Þetta segir ítalskur doktorsnemi sem hefur ekki þungar áhyggjur af uppgangi þjóðernispopúlisma í heimalandi sínu. 26. september 2022 21:18
Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Innlent
Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Innlent