Tandri inn fyrir Ými

Tandri Már Konráðsson í fyrri leiknum gegn Ísrael í síðustu …
Tandri Már Konráðsson í fyrri leiknum gegn Ísrael í síðustu viku. Ljósmynd/HSÍ

Guðmundur Þórður Guðmundsson, þjálfari karlalandsliðsins í handknattleik, hefur valið þá 16 leikmenn sem mæta Ísrael í undankeppni EM 2022 á Ásvöllum í dag. Ýmir Örn Gíslason ferðaðist ekki með íslenska hópnum til Íslands af persónulegum ástæðum og tekur Tandri Már Konráðsson sæti hans í hópnum.

Leikurinn er síðasti leikur liðsins í undankeppni EM en fyrir leikinn hafa bæði Ísland og Portúgal tryggt sér sæti á mótinu.

Leikurinn hefst klukkan 16 og verður lýst í beinni textalýsingu hér á mbl.is.

Hópur Íslands gegn Ísrael er eftirfarandi:


Markverðir:

Ágúst Elí Björgvinsson, KIF Kolding (40/1)

Viktor Gísli Hallgrímsson, GOG (24/1)


Vinstra horn:

Bjarki Már Elísson, TBV Lemgo Lippe (81/228)

Oddur Gretarsson, Balingen-Weistetten (28/37)


Vinstri skytta:

Aron Pálmarsson, Barcelona (151/590)

Daníel Þór Ingason, Ribe Esbjerg HH (33/9)

Ólafur Andrés Guðmundsson, IFK Kristianstad (132/262)

Tandri Már Konráðsson, Stjarnan (23/27)


Leikstjórnendur:

Elvar Örn Jónsson, Skjern (45/116)

Gunnar Steinn Jónsson, Göppingen (44/36)


Hægri skytta:

Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (55/146)

Teitur Örn Einarsson, IFK Kristianstad (20/19)

Viggó Kristjánsson, Stuttgart (20/51)


Hægra horn:

Sigvaldi Björn Guðjónsson, Vive Kielce (38/79)


Línumenn:

Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (62/76)

Sveinn Jóhannsson, SønderjyskE Håndbold (11/19)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert