Lögmál leiksins: „Já takk“ við CP3 en „nei takk“ við Brooklyn gegn Milwaukee Sindri Sverrisson skrifar 25. janúar 2022 10:01 Það var létt yfir mönnum í Lögmálum leiksins á Stöð 2 Sport 2 í gærkvöld. Stöð 2 Sport 2 Boðið var upp á nýjan leik í þættinum Lögmál leiksins í gærkvöld þar sem NBA-deildin í körfubolta er krufin til mergjar. Leikurinn ber heitið „Já takk/Nei takk“ og virkar þannig að þáttastjórnandinn Kjartan Ati Kjartansson ber fram fullyrðingu og sérfræðingar hans segja annað hvort „Já, takk“ eða „Nei, takk“, með tilheyrandi rökstuðningi. Brot úr þættinum, sem sýndur er á Stöð 2 Sport 2 á mánudögum, má sjá hér að neðan: Klippa: Lögmál leiksins - Já takk eða nei takk Fullyrðingar Kjartans voru úr ýmsum áttum og oftast greindi menn á að einhverju leyti. Til að mynda varðandi Jayson Tatum, lykilleikmann Boston Celtics: „Það hefði örugglega verið nei takk í gær en svo átti hann 50 stiga leik í fyrrinótt, þannig að ég verð eiginlega að segja já takk. Við vitum að „þakið“ er enn rosalega hátt hjá Tatum. Hann getur skorað körfur í öllum regnbogans litum,“ sagði Tómas Steindórsson. Fullyrðingarnar í „Já takk/Nei takk“: Cleveland verður með heimavallarrétt Jayson Tatum Brooklyn leggur Milwaukee í seríu CP3 á heima í MVP-umræðunni Úlfarnir komast í úrslitakeppnina Tómas var einnig á því að Brooklyn Nets myndi ekki geta lagt Milwaukee Bucks að velli í seríu, og Hörður Unnsteinsson tók undir það: „Nei takk. Milwaukee og Miami held ég að verði tvö bestu liðin þegar upp er staðið í austrinu í vor. Í seríu núna myndi Milwaukee leggja Brooklyn að mínu mati,“ sagði Hörður en Sigurður Orri Kristjánsson var ekki sammála. „Besti leikmaðurinn í besta liðinu“ Félagarnir voru hins vegar allir sammála um að Chris Paul ætti heima í MVP-umræðunni og Sigurður Orri sagði Paul, eða CP3, geta hlotið þann heiður að vera útnefndur mikilvægasti leikmaður NBA-deildarinnar ef Phoenix Suns héldi áfram sömu sigurgöngu og undanfarið: „Auðvitað á hann heima í MVP-umræðunni. Hann er besti leikmaðurinn í besta liðinu. En, hann getur ekki orðið MVP, nema Phoenix gjörsamlega stingi af. Þá getur hann fengið svona „Steve Nash MVP“ með sín 15-16 og 10-11. Hann leiðir deildina í stoðsendingum, og er númer þrjú í stolnum boltum, þeir vinna hvern einasta leik. Ef þeir stinga af þá á hann séns, og hann á auðvitað heima í MVP-umræðunni og verður í topp fimm, rétt eins og í fyrra,“ sagði Sigurður. Umræðuna alla má sjá hér að ofan. Lögmál leiksins er vikulegur þáttur um NBA-deildina sem er sýndur á mánudögum á Stöð 2 Sport 2. NBA-deildin er hluti af Sport Erlent sem kostar kr. 3.990 á mánuði. Smelltu hér til að kaupa áskrift. NBA Lögmál leiksins Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Handbolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Enski boltinn Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ Körfubolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum Íslenski boltinn Remy Martin ekki meira með í þessari úrslitakeppni Körfubolti Fleiri fréttir Eigendur 76ers gefa miða svo Knicks aðdáendur taki ekki aftur yfir „Vörnin í dag, það er það sem vann þetta“ „Virkilega léleg frammistaða heilt á litið“ Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 66-58 | Njarðvíkingar einum sigri frá úrslitum Emil tekur við Haukum af Ingvari Sló í myndavél og gæti fengið bann Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Veikur og meiddur Doncic fór á kostum og Boston flaug áfram Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers PlayAir leiksins var Dedrick Deon Basile Ein af stóru Sólunum gæti fært sig yfir í Stóra eplið Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið „Ansi erfitt fyrir Grindvíkinga að hann hagi sér svona og fái mögulega leikbann“ Magnaður Maxey bjargaði Sixers frá sumarfríi Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ LeBron gæti fengið sig lausan frá Lakers og verið án félags í sumar Remy Martin ekki meira með í þessari úrslitakeppni „Breytir einvíginu ansi mikið“ „Af hverju þurfa þeir meiri athygli, er þetta ekki bara fínt?“ Uppgjör: Grindavík - Keflavík 102-94 | Gulir unnu fyrsta bardagann Martin meiddist og á leið upp á sjúkrahús Lakers lætur Ham líklega fara Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki LeBron James gæti hafa spilað kveðjuleik sinn „Þeir voru bara miklu betri í kvöld og áttu sigurinn skilið“ „Skákin er bara byrjuð“ Uppgjör: Valur - Njarðvík 84 - 105 | Deildarmeistararnir fengu kjaftshögg „Gæinn væri Alpha hundur í öllum liðum“ Tók sinn tíma að jafna sig Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Sjá meira
Leikurinn ber heitið „Já takk/Nei takk“ og virkar þannig að þáttastjórnandinn Kjartan Ati Kjartansson ber fram fullyrðingu og sérfræðingar hans segja annað hvort „Já, takk“ eða „Nei, takk“, með tilheyrandi rökstuðningi. Brot úr þættinum, sem sýndur er á Stöð 2 Sport 2 á mánudögum, má sjá hér að neðan: Klippa: Lögmál leiksins - Já takk eða nei takk Fullyrðingar Kjartans voru úr ýmsum áttum og oftast greindi menn á að einhverju leyti. Til að mynda varðandi Jayson Tatum, lykilleikmann Boston Celtics: „Það hefði örugglega verið nei takk í gær en svo átti hann 50 stiga leik í fyrrinótt, þannig að ég verð eiginlega að segja já takk. Við vitum að „þakið“ er enn rosalega hátt hjá Tatum. Hann getur skorað körfur í öllum regnbogans litum,“ sagði Tómas Steindórsson. Fullyrðingarnar í „Já takk/Nei takk“: Cleveland verður með heimavallarrétt Jayson Tatum Brooklyn leggur Milwaukee í seríu CP3 á heima í MVP-umræðunni Úlfarnir komast í úrslitakeppnina Tómas var einnig á því að Brooklyn Nets myndi ekki geta lagt Milwaukee Bucks að velli í seríu, og Hörður Unnsteinsson tók undir það: „Nei takk. Milwaukee og Miami held ég að verði tvö bestu liðin þegar upp er staðið í austrinu í vor. Í seríu núna myndi Milwaukee leggja Brooklyn að mínu mati,“ sagði Hörður en Sigurður Orri Kristjánsson var ekki sammála. „Besti leikmaðurinn í besta liðinu“ Félagarnir voru hins vegar allir sammála um að Chris Paul ætti heima í MVP-umræðunni og Sigurður Orri sagði Paul, eða CP3, geta hlotið þann heiður að vera útnefndur mikilvægasti leikmaður NBA-deildarinnar ef Phoenix Suns héldi áfram sömu sigurgöngu og undanfarið: „Auðvitað á hann heima í MVP-umræðunni. Hann er besti leikmaðurinn í besta liðinu. En, hann getur ekki orðið MVP, nema Phoenix gjörsamlega stingi af. Þá getur hann fengið svona „Steve Nash MVP“ með sín 15-16 og 10-11. Hann leiðir deildina í stoðsendingum, og er númer þrjú í stolnum boltum, þeir vinna hvern einasta leik. Ef þeir stinga af þá á hann séns, og hann á auðvitað heima í MVP-umræðunni og verður í topp fimm, rétt eins og í fyrra,“ sagði Sigurður. Umræðuna alla má sjá hér að ofan. Lögmál leiksins er vikulegur þáttur um NBA-deildina sem er sýndur á mánudögum á Stöð 2 Sport 2. NBA-deildin er hluti af Sport Erlent sem kostar kr. 3.990 á mánuði. Smelltu hér til að kaupa áskrift.
Fullyrðingarnar í „Já takk/Nei takk“: Cleveland verður með heimavallarrétt Jayson Tatum Brooklyn leggur Milwaukee í seríu CP3 á heima í MVP-umræðunni Úlfarnir komast í úrslitakeppnina
Lögmál leiksins er vikulegur þáttur um NBA-deildina sem er sýndur á mánudögum á Stöð 2 Sport 2. NBA-deildin er hluti af Sport Erlent sem kostar kr. 3.990 á mánuði. Smelltu hér til að kaupa áskrift.
NBA Lögmál leiksins Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Handbolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Enski boltinn Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ Körfubolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum Íslenski boltinn Remy Martin ekki meira með í þessari úrslitakeppni Körfubolti Fleiri fréttir Eigendur 76ers gefa miða svo Knicks aðdáendur taki ekki aftur yfir „Vörnin í dag, það er það sem vann þetta“ „Virkilega léleg frammistaða heilt á litið“ Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 66-58 | Njarðvíkingar einum sigri frá úrslitum Emil tekur við Haukum af Ingvari Sló í myndavél og gæti fengið bann Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Veikur og meiddur Doncic fór á kostum og Boston flaug áfram Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers PlayAir leiksins var Dedrick Deon Basile Ein af stóru Sólunum gæti fært sig yfir í Stóra eplið Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið „Ansi erfitt fyrir Grindvíkinga að hann hagi sér svona og fái mögulega leikbann“ Magnaður Maxey bjargaði Sixers frá sumarfríi Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ LeBron gæti fengið sig lausan frá Lakers og verið án félags í sumar Remy Martin ekki meira með í þessari úrslitakeppni „Breytir einvíginu ansi mikið“ „Af hverju þurfa þeir meiri athygli, er þetta ekki bara fínt?“ Uppgjör: Grindavík - Keflavík 102-94 | Gulir unnu fyrsta bardagann Martin meiddist og á leið upp á sjúkrahús Lakers lætur Ham líklega fara Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki LeBron James gæti hafa spilað kveðjuleik sinn „Þeir voru bara miklu betri í kvöld og áttu sigurinn skilið“ „Skákin er bara byrjuð“ Uppgjör: Valur - Njarðvík 84 - 105 | Deildarmeistararnir fengu kjaftshögg „Gæinn væri Alpha hundur í öllum liðum“ Tók sinn tíma að jafna sig Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti
Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti