Dansari truflaði umferð

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. mbl.is/​Hari

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í dag um dansara sem var að trufla umferð í hverfi 108. Var dansaranum bent á að gangstéttin væri betri dansstaður og færði hann sig þangað.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.

Eldur í bifreið

Þá var tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir í hverfi 105. Rætt var við tvo aðila sem þekktir eru hjá lögreglu.

Sömuleiðis var tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir í hverfi 210. Þar hafði húsráðandi læst sig úti og fór inn um gluggann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert