Undanþága veitt frá sóttvarnareglum á Bessastöðum Jakob Bjarnar skrifar 26. janúar 2022 14:45 Engum datt í hug að vera með grímu þegar Íslensku bókmenntaverðlaunin voru afhent á Bessastöðum í gær. Forseti Íslands var gestgjafi en á myndinni má sjá Heiðar Inga Svansson formann Fibut flytja ávarp. skjáskot/ruv Nokkurrar undrunar gætir á samfélagsmiðlum vegna þess sem sjá mátti í útsendingu Ríkissjónvarpsins frá Bessastöðum í gærkvöldi, þegar Íslensku bókmenntaverðlaunin voru afhent: Ekki verði betur séð en lög um sóttvarnir séu þar þverbrotin. Ekki segir skrifstofa forseta Íslands.
Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson afhenti verðlaunin og ávarpaði salinn en gestir voru fimmtíu. Sem sátu prúðbúnir og grímulausir. Heiðar Ingi Svansson formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, sem hafa veg og vanda að verðlaunum, vill ekki tjá sig um málið þegar Vísir leitaði eftir því. „No comment,“ segir formaðurinn og bendir á að viðburðurinn sé á forræði forsetaskrifstofunnar og Ríkisútvarpsins. Ríkisútvarpið fær undanþágu frá reglum Morgunblaðið leitaði svara við þessu álitaefni á sinni fréttavakt í gær en í blaðinu í morgun má lesa svör Sifjar Gunnarsdóttur forsetaritara við spurningum um hvort þarna hafi verið farið á svig við reglur. Á daginn kemur að Ríkisútvarpið og skrifstofa forseta Íslands fengu sérstaka undanþágu frá almennum sóttvarnareglum vegna þessa atburðar. „Rúv, í svona upptöku, er með undanþágu þannig að við sátum þarna með öllum, öllu tæknifólki og starfsfólki, og það voru undir 40 manns,“ sagði Sif í samtali við Morgunblaðið spurð í hvaða sóttvarnaregluflokk viðburðurinn hefði fallið. Sif segir að Rúv megi við slík upptökuskilyrði vinna með 40 manns í tilteknu rými. Að sögn Sifjar hefur Ríkisútvarpið sérstakar heimildir þegar slíkar aðstæður koma upp og þá að bil sé milli fólks og 40 manns sé í rýminu. En samkvæmt reglum má hafa allt að 50 manns á sitjandi sviðslistarviðburðum ef; a) allir gestir séu sitjandi og ekki andspænis hver öðrum, b) Allir gestir noti andlitsgrímu (sem ekki var við afhendingu verðlaunanna), ekki séu seldar áfengisveitingar fyrir, á meðan og eftir að honum lýkur og d) að viðstaddir haldi kyrru fyrir í sætum sínum ef hlé er gert á viðburðinu. Það sem höfðingjarnir hafast að Einn sem tekið hefur málið upp á sinni Facebooksíðu er Leifur Ragnar Jónsson: „Hvers lags grín eru þessar sóttvarnarreglur og samkomutakmarkanir ? Mega koma fleiri en 10 saman ef að er partý á Bessastöðum? Þvílík hræsni og auðvitað í beinni á RÚV. Til að minna okkur á að það eru ekki öll jöfn fyrir reglunum?“ Nokkur umræða er í athugasemdum á Facebooksíðu Leifs Ragnars: „Ef forseti Íslands meinar orð af því sem hann hefur sagt þjóðinni í faraldrinum, hefði átt að ganga á undan með góðu fordæmi og setja upp grímu,“ segir einn og annar telur þetta lélegt. Almennt vilja þeir sem leggja orð í belg meina að það sem „höfðingjarnir hafast að, hinir meina sér leyfist það,“ eins og segir í Passíusálmunum. Og það séu nú ekki góðar tvíbökur.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Forseti Íslands Samkomubann á Íslandi Bókmenntir Guðni Th. Jóhannesson Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Erlent Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents Innlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Erlent „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Innlent Fyrsti stríðsþristurinn lentur Innlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Innlent Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt Innlent Þolinmæði saminganefnda á þrotum Innlent Fleiri fréttir Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Sungið og sungið á Sauðárkróki „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Sjá meira