Vilja að Bolsonaro verði ákærður fyrir morð Samúel Karl Ólason skrifar 19. október 2021 23:24 Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu. AP/Eraldo Peres Brasilískir öldungadeildarþingmenn segja að ákæra ætti Jair Bolsonaro, forseta landsins, vegna fjölda dauðsfalla sökum Covid-19. Meðal annars ætti að ákæra hann fyrir morð fyrir að ákvarðanir sem leiddu til aukinnar útbreiðslu Covid í Brasilíu.
Ein alvarlegasta ásökunin gegn Bolsonaro snýr að því að hann hafi vísvitandi dregið lappirnar í því að kaupa bóluefni og vegna þessa hafi þúsundir dáið. Hann hafi fyrst fengið tækifæri til að kaupa bóluefni í júlí 2020 en hafi ekki gert það fyrr en í janúar. Meira en 600 þúsund manns eru látnir í Brasilíu vegna Covid-19, svo vitað sé. Í bráðabirgðaskýrslu öldungadeildarinnar, sem fjölmiðlar ytra hafa birt, segir að forsetinn beri ábyrgð á þeim ákvörðunum sem teknar voru í ríkisstjórn hans. Í frétt Guardian segir að skýrslan gæti komið niður á Bolsonaro en um hálft ár er í næstu þingkosningar í Brasilíu. Þá hafa bandamenn hans og embættismenn verið dregnir af þingmönnum fyrir myndavélar á nefndarfundum og mikil reiði sé í garð ríkisstjórnar Bolsonaro. Bolsonaro hefur ítrekað verið gagnrýndur af heilbrigðissérfræðingum fyrir að vera mótfallinn sóttvarnaraðgerðum og neita að bera grímu, svo eitthvað sé nefnt. Hann hefur þar að auki hvatt fólk til að notast við lyf eins og malaríulyfið hydroxychloroquine, sem ekki hefur verið sannað að virki gegn Covid. Öldungadeildin hefur ekki samþykkt skýrsluna og henni gæti verið breytt. Bolsonaro sjálfur sagði í dag að hann liti á rannsókn þingsins sem brandara og hefði engar áhyggjur af henni. Forsetinn þarf í raun ekki að hafa áhyggjur því líkur á því að hann verði færður fyrir dómara eru litlar sem engar. Sérstaklega á meðan hann situr í embætti. Jafnvel þó þingið samþykkti að ákæra hann væri lokaákvörðunin í höndum ríkissaksóknara Brasilíu, sem er skipaður af Bolsonaro. Forsetakosningar verða haldnar á næsta ári og enn sem komið er sýna kannanir að Bolsonaro bíður erfið barátta. Samkvæmt gagnagrunni Johns Hopkins háskólans er vitað til þess að minnst 603.855 manns hafa dáið vegna Covid-19 í Brasilíu. Það er næst hæsta talan í heiminum en í Bandaríkjunum hafa 727.907 dáið.
Brasilía Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Umfangsmikil mótmæli gegn Bolsonaro í Brasilíu Tugir þúsunda komu saman í stærstu borgum Brasilíu í gær til að mótmæla yfirvöldum landsins og kalla eftir því að Jair Bolsonaro, forseti landsins, verði vikið úr embætti. 3. október 2021 10:30 Forseti Brasilíu segir Johnson hafa falast eftir „neyðarsamningi“ um ákveðna matvöru Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, segir forsætisráðherra Bretlands hafa biðlað til hans um „neyðarsamkomulag“ vegna skorts á ákveðinni matvöru. Stjórnvöld í Bretlandi eru sögð hafa neitað því að ummælin eigi við rök að styðjast. 24. september 2021 12:38 Í skurðaðgerð vegna fylgikvilla hnífstungu árið 2018 Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, þarf mögulega í neyðarskurðaðgerð vegna stíflu í þörmum. Hann var lagður inn á hersjúkrahús til aðhlynningar í fyrradag eftir að hafa fundið til í maganum og vera með hiksta í meira en tíu daga. 15. júlí 2021 13:49 Ástandið aldrei verið verra í Brasilíu Dauðsföll af völdum Covid-19 heimsfaraldursins eru nú orðin fleiri en 500.000 í Brasilíu. Brasilía er með næst hæstu tíðni dauðsfalla í heiminum vegna faraldursins, á eftir Bandaríkjunum þar sem yfir 600.000 hafa látist. 20. júní 2021 11:08 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Sjá meira
Umfangsmikil mótmæli gegn Bolsonaro í Brasilíu Tugir þúsunda komu saman í stærstu borgum Brasilíu í gær til að mótmæla yfirvöldum landsins og kalla eftir því að Jair Bolsonaro, forseti landsins, verði vikið úr embætti. 3. október 2021 10:30
Forseti Brasilíu segir Johnson hafa falast eftir „neyðarsamningi“ um ákveðna matvöru Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, segir forsætisráðherra Bretlands hafa biðlað til hans um „neyðarsamkomulag“ vegna skorts á ákveðinni matvöru. Stjórnvöld í Bretlandi eru sögð hafa neitað því að ummælin eigi við rök að styðjast. 24. september 2021 12:38
Í skurðaðgerð vegna fylgikvilla hnífstungu árið 2018 Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, þarf mögulega í neyðarskurðaðgerð vegna stíflu í þörmum. Hann var lagður inn á hersjúkrahús til aðhlynningar í fyrradag eftir að hafa fundið til í maganum og vera með hiksta í meira en tíu daga. 15. júlí 2021 13:49
Ástandið aldrei verið verra í Brasilíu Dauðsföll af völdum Covid-19 heimsfaraldursins eru nú orðin fleiri en 500.000 í Brasilíu. Brasilía er með næst hæstu tíðni dauðsfalla í heiminum vegna faraldursins, á eftir Bandaríkjunum þar sem yfir 600.000 hafa látist. 20. júní 2021 11:08