CCP tryggir sér 5,6 milljarða fyrir bálkakeðjuleik Samúel Karl Ólason skrifar 21. mars 2023 14:34 Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP. Forsvarsmenn leikjafyrirtækisins CCP hafa tryggt félaginu 5,6 milljarða króna í fjármögnun vegna þróunar nýs tölvuleiks sem byggir á bálkakeðjutækni (e. Blockchain). Þróun leiksins er þegar hafinn í höfuðstöðvum CCP í Reykjavík.
Í tilkynningu frá CCP segir að leikurinn marki tímamót í 25 ára sögu fyrirtækisins, sem hafi verið í fararbroddi í þróun stafrænna sýndarheima. Fyrirtækið er hvað þekktast fyrir EVE Online. „Með framförum í bálkakeðjutækni myndast spennandi tækifæri til að skapa enn meiri dýpt og frelsi fyrir spilarana okkar. Við höfum alltaf lagt okkur fram um að vera á mörkum hins mögulega og ganga skrefinu lengra. Með því að nota bálkakeðjur færum við enn á ný til mörkin í leikjahönnun, sköpum ný spennandi tækifæri fyrir spilara og frelsi til að skapa eigin upplifanir“ segir Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP í áðurnefndri´tilkynningu, en EVE Online leikjaheimur fyrirtækisins stendur nú á sínu tuttugasta starfsári. „Við erum afar þakklát fyrir traust samstarfsaðila okkar við gerð þessa nýja leiks." Fjármögnunin var samkvæmt tilkynningunni leidd af Andreessen Horowitz sem hefur verið umfangamikill fjárfestir í nýsköpunar- og tæknifyrirtækjum frá árinu 2009 og meðal annars verið í fararbroddi fjárfestinga í Airbnb, Skype, Twitter og Facebook. Auk Andreessen Horowitz taka Makers Fund, Bitcraft og fleiri aðilar þátt í fjármögnuninni. „CCP er brautryðjandi á sviði tækni og sýndarveruleika, með 25 ára reynslu af vöruþróun og að viðhalda stafrænum hagkerfum í gegnum EVE Online. Starfsfólk þeirra býr yfir hafsjó af reynslu og við höfum mikla trú á framtíðarsýn fyrirtækisins um að skapa magnaða upplifun á mótum framúrskarandi leikjahönnunar og bálkakeðjutækni,“ segir Jon Lai, meðeigandi hjá Andreessen Horowitz, en samhliða sjálfstæðri fjármögnun er framleiðsla hins nýja leiks aðskilin frá öðrum verkefnum CCP. Aðalsteinn Rúnar Óttarsson, fjárfestingastjóri hjá Makers Fund, segir gæði EVE Online og margslungið hagkerfi leiksins hafa sett háan stall innan iðnaðarins og gjarnan sé litið til EVE sem fordæmis við gerð bálkakeðjuleikja. „Sem fyrrverandi starfsmaður CCP finnst mér sérstaklega ánægjulegt að eiga aftur samleið með fyrirtækinu og sjá að þar hefur ástríðan fyrir nýsköpun á sviði leikjaþróunar síður en svo dvínað. Við erum spennt að styðja við sýn CCP við að víkka enn frekar út EVE heiminn með nýrri tækni." CPP heldur upp á tuttugu ára afmæli EVE á þessu ári.
Leikjavísir Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Viðskipti innlent Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Viðskipti innlent Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent VÍS gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf Samstarf Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Sjá meira