Hefur góða tilfinningu fyrir EM: „Það er eldur í liðinu“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. janúar 2022 15:31 Aron Pálmarsson er reynslumesti útileikmaðurinn í íslenska hópnum. vísir/vilhelm Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í handbolta, segir andann og hugarfarið í liðinu gott.
Aron og Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari sátu fyrir svörum á blaðamannafundi í dag. Á morgun heldur íslenska liðið til Búdapest í Ungverjalandi þar sem leikir þess í B-riðli Evrópumótsins fara fram. Fyrsti leikur Íslands er gegn Portúgal á föstudagskvöldið. Íslenska liðið hefur verið í búbblu á Grand hótel undanfarna daga til að forðast kórónuveirusmit. Aron segir að þótt aðstæður séu krefjandi reyni Íslendingar að gera gott úr þeim. „Þetta er öðruvísi, að þurfa að pæla í þessum hlutum. Við höfum reynt að líta á þetta sem verkefni. Öll liðin þurfa að standa í þessu. Þetta er ákveðin hugarfimleiki sem þú ert í. Þú getur svo alltaf sótt í að þetta er ekki bara svona hjá okkur. Ég held að við höfum gert eins vel og hægt er. Þetta er áskorun en við látum þetta ekki trufla okkur,“ sagði Aron. Hann missti af síðasta stórmóti, HM í Egyptalandi, en er kominn aftur í landsliðið og er á leið á sitt sjöunda Evrópumót. Aron hefur góða tilfinningu fyrir EM. „Ég tel okkur geta staðið okkur vel. Þetta lið hefur verið í mótun í 3-4 ár. Andinn og sjálfstraustið er gott og það er eldur í liðinu sem ég hef fundið í þessari æfinguviku. Við erum með fullt af leikmönnum sem hafa sannað sig í Evrópu og við gera það sama með landsliðinu,“ sagði Aron. „Það er auðvelt að tala um þetta fyrir mót en þurfum að sýna þetta á vellinum. En það er gott sjálfstraust og góður í mórall í hópnum.“
EM karla í handbolta 2022 Mest lesið Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal Íslenski boltinn Í beinni: Grindavík-Valur | Valsmenn geta komist í 2-0 Körfubolti Leik lokið: FH-KR 1-2 | KR-ingar á sigurbraut eftir hark í Hafnafirði Íslenski boltinn Jón Arnar grét það ekki að sjá Daníel slá þrjátíu ára Íslandsmet sitt Sport Uppgjörið: Vestri-Víkingur 1-4 | Öruggur meistarasigur gegn nýliðunum Íslenski boltinn Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera Enski boltinn Uppgjör og viðtöl: KA-Fylkir 4-2 | Fyrsti sigur Akureyringa í hús Íslenski boltinn Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Fótbolti Fékk rautt spjald fyrir brot á Sveindísi sem fór meidd af velli Fótbolti Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Óðinn og félagar misstu frá sér fimm marka forskot „Þetta einvígi er rétt að byrja“ Bjarki og félagar bikarmeistarar fjórða árið í röð Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Gummersbach heldur í Evrópuvon eftir sigur í Íslendingaslag Haukur og félagar lentir undir í úrslitaeinvíginu eftir vítakeppni Strákarnir hans Gumma komu til baka í öðrum spennutrylli Mættust síðast í úrslitum fyrir aldarfjórðungi Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Ómar og Viggó röðuðu inn mörkum í sigrum Bjarki og félagar í úrslit eftir öruggan sigur „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ „Þurfum bara okkar besta leik í vetur“ Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Sjá meira