Sundfólkið Snæfríður Sól Jórunnardóttir og Anton Sveinn McKee verða fánaberar Íslands á setningarhátíð Ólympíuleikanna á morgun. ÍSÍ tilkynnti þetta í dag. Þrátt fyrir að keppni í fótbolta sé hafin á leikunum, verða þeir formlega settir á morgun.
Tilkynning ÍSÍ:
Það er ÍSÍ mikil ánægja að tilkynna að Snæfríður Sól Jórunnardóttir og Anton Sveinn McKee verða fánaberar Íslands á setningarhátíð Ólympíuleikanna í Tókýó á morgun, föstudaginn 23. júlí. Setningarhátíðin hefst kl. 11:00 að íslenskum tíma og mun RÚV sýna beint frá hátíðinni.
Þetta verður í fyrsta skipti sem fánaberar þátttökulandanna eru tveir, ein kona og einn karl. Á leikunum í Tókýó er nánast jafn fjöldi kvenkyns og karlkyns keppenda og hafa hlutföllin aldrei verið jafnari á nokkrum Ólympíuleikum. Er stefnt að því að á leikunum í París 2024 verði fullu jafnvægi náð í fjölda keppenda af hvoru kyni.
Íslenski hópurinn, með Anton Svein og Snæfríði Sól í fararbroddi, mun verða fyrstur inn á leikvanginn á eftir gríska hópnum sem alltaf gengur fyrstur inn á leikvanginn á öllum Ólympíuleikum og flóttamannaliði Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC Refugee Olympic Team). Farið er eftir japanska stafrófinu og þess vegna raðast Ísland fremst þjóða.
Síðastir inn á leikvanginn verða gestgjafarnir, þ.e. Japanir, en á undan þeim næstu gestgjafar, þ.e. Bandaríkin og Frakkar. Þetta fyrirkomulag er nýjung á setningarhátíð Ólympíuleika.