Hvenær kemur nýi búningurinn?

Rjúpur eru enn sjáanlegri þessa dagana en vanalega. Helgast það af því að þær eru enn í vetrarbúningnum og fyrir vikið er auðvelt að koma auga á þær þar sem þær vappa um móa þessa lands.

Doppóttar verða þær fyrst áður en þær skipta alfarið um ham. Í þessu ástandi eru þær enn einn vorboðinn og áminning þess að stutt er í sólríka sumardaga. Þessar tvær verða eflaust fegnar þegar hamskiptin yfir í brúnt hafa átt sér stað því þangað til gætu vargar átt auðvelt með að næla sér í bita.

Rjúpa er eini hænsnfuglinn sem lifir villtur á Íslandi. Hún fellir bolfjaðrir þrisvar á ári en flugfjaðrir aðeins einu sinni.

Rjúpan flýgur hratt og lágt með hröðum vængjatökum og lætur sig svífa með sveigða vængi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert